Ágæti Forsætisráðherra,
líklega hefur þú veitt því eftirtekt eins og aðrir landsmenn að fjölmargir Hollvinir Ríkisútvarpsins hafa að undanförnu auglýst á samtengdum rásum Ríkisútvarpsins og beðið alþingismenn um að skerða ekki útvarpsgjaldið. Þessi áskorun sem endurspeglar vilja þjóðarinnar er ekki einungis áskorun til alþingismanna heldur einnig ríkisstjórnarinnar sem hefur til meðferðar frumvarp sem líklega ræður úrslitum um framtíð Ríkisútvarpsins.
Skerðist útvarpsgjaldið eins og gert er ráð fyrir þýðir það 4-500 miljóna niðurskurð fyrir RÚV sem má líkja við banahögg. Enginn af þínum forverum á stóli forsætisráðherra né heldur menntamálaráðherrar úr sömu flokkum og eru við völd í dag, hefur lagst gegn útvarpi í almannaeign og ekki var það heldur á stefnuskrá núverandi ríkisstjórnar að svelta það til bana með þessu móti.
Það má gera ráð fyrir að þú hafi ekki gefið gaum öllum þeim auglýsingum sem lesnar hafa verið í Útvarpið. Þess vegna langar mig að senda þér nafnalista þeirra sem sjálfir greiddu fyrir að láta vita að þeir séu Hollvinir Ríkisútvarpsins og biðja alþingismenn og ríkisstjórnina um að skerða ekki frekar útvarpsgjaldið.
Á þeim lista eru fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar og sömuleiðis aðrir, minna þekktir, sem vilja taka slaginn fyrir Ríkisútvarpið, „RÚV allra landsmanna“. Ekkert slagorð getur verið sterkara en þetta.
Það komust færri að en vildu í þessa auglýsingaherferð Hollvina. Listinn birtist í sinni heild hér.
Við, hollvinir Ríkisútvarpsins, sem samkvæmt skoðanakönnunum erum mikill meirihluti þjóðarinnar, treystum því að rödd okkar heyrist og að tekið verði tillit til eindregins vilja okkar að fá áfram að hafa lífandi, fjölbreytt og metnaðarfullt íslenskt Ríkisútvarp. Við skorum á þig að standa með þjóðinni , og tryggja framtíð Ríkisútvarpsins.
Virðingarfyllst,
Dominique Plédel Jónsson
Formaður Hollvina Ríkisútvarpsins
hollvinirruv@hollvinirruv.is