Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Ekki glæpamenn – of góðir til að sitja í fangelsi?

$
0
0

Fínu fangarnir, á Kvíabryggju, sem vilja ekki láta nafns síns getið en allir vita hvað heita, voru dæmdir m.a fyrir „Blekkingu og sýndarmennsku“ eins og segir í dómi sem hneppti þá í tugthús.

Allt tal um að þessir menn séu ekki skaðlegir umhverfi sínu er rugl – að stefna fjármálum þjóðar í voða er sannarlega glæpur og þess vegna sitja þeir í fangelsi – þar sem þeir eiga að læra að skammast sín.

Umbóta og mannúðarsinnar ættu að berjast fyrir því að fólki sem hefur litla stjórn yfir örlögum sínum svo sem eins og mansalsfórnarlömbum, burðardýrum og fíklum með neysluskammta sé þyrmt við fangelsisvist því fangelsi ættu með réttu að vera einungis fyrir glæpamenn sem eru skaðlegir umhverfi sínu.

Það er í raun óskiljanlegt að ekki skuli hafa verið hérlendis gerð hópmálsókn á hendur banksterunum – af hluthöfum bankanna, almennum viðskiptavinum og skattgreiðendum. Nei, þess í stað þurfum við að horfa upp á Skype viðtöl við þessa menn í sjónvarpinu þar sem þeir kvarta undan framferði fangelsismálastjóra. Hver er glæpur hans? Að hann hafi skáldað það að þeir hafi beðið um vín með matnum?

Maður bara sársaknar stillimyndarinnar á svona stundum.

Þeir nýta sér í sveitakyrrðinni embætti Umboðsmanns Alþingis, sem er undir niðurskurðarhnífi ríkisstjórnarinnar – til að ganga aumra erinda sinna og afskræma embættið þar með. Umboðsmaður verður að sinna því duttlungakalli jafnvel og hann gerir fyrir fangana Annþór og Börk.

Staða Annþórs og Barkar er þó allt önnur en umræddra fínufanga og hugsanleg brot fangelsisyfirvalda og réttarríkissins í máli þeirra fyrrnefndu gera tilvist umboðsmanns lífsnauðsynlega í réttaríkinu Íslandi.

Ólafur Ólafsson reynir nú hellaður af sveitaloftinu að villa um fyrir fólki með blekkingum og sýndarmennsku. Hann er spunameistari og skrifar þá sögu sem hann vill að sé sögð. Sagan sem í takt við íslenskar þjóðsögur mun eflaust enda svo að hann verður borinn í gullstól út af Kvíabryggju niður í Sundahöfn þar sem enginn annar en Elton John tekur á móti honum og leyfir honum jafnvel að syngja með sér dúett.

Fínufangarnir eru svo ímyndunarveikir og sjálfumglaðir að þeir telja að kvikmyndagerðarmaðurinn Michael Moore, undir stjórn meints íslensks umboðsmanns hans á Íslandi, Páls Winkel –hafi misst svefn vegna þess að hann fékk ekki að taka myndir af Al- Thani teyminu. Það hefur nú verið staðfest að það var ekki tilgangur heimsóknar Michaels að mynda kumpánana.

Á maður að trúa því að Páll Winkel nýti Kvíabryggju sem eitthvað prívat peep-show sem hann selur inn á?

En ef einhver getur komið sjálfum fangelsismálastjóra frá þá eru það milljarðamæringarnir sem sitja af sér þessa dóma og gera lítið annað en vorkenna sjálfum sér enda víst lítið um hefðarmannaviðurgjörning á Kvíabryggju og þar liggur brandarinn grafinn. Þeim leiðist vistin – því það er svo fokking leiðinlegt að vera fangi.

Í viðtali við Viðskiptablaðið segir Ólafur að Kvíabryggja sé ömurlegur staður og að það sé ömurlegt hlutskipti í lífinu að búa við það að vera í fangelsi. No shit Óli!

Hann að sögn sinnir hins vegar sínu starfi og er mjög duglegur í líkamsrækt og segir að fjárhagsstaða sín sé nokkuð góð. No shit Óli!

Maðurinn rekur Samskip ásamt fleiri fyrirtækjum og hann fær heimsóknir fyrirmanna og lögfræðinga í fangelsið samkvæmt heimildum Kvennablaðsins og getur því stundað viðskipti svotil óáreittur og eignastýrt alveg hægri-vinstri.

Eitt af umkvörtunarefnum Ólafs eru ummmæli og grínaktugt orðalag Páls Winkel um SPA og Rauðvín? (Er einhver að skrifa handrit að bíómynd um þetta lið?)

Fyrir Ólaf Ólafsson er lífið sumsé heldur glatað enda umhverfið súrt annars bara bisness as usual.

Daginn eftir að dómurinn féll tilkynnti Ólafur að hann myndi leita til mannréttindadómstóls Evrópu. Maður sem telur ekki eftir sér að ónáða mannréttindadómstólinn er til alls líklegur

Ólafur Ólafsson hlífðu okkur.

Þú munt fyrr en þig grunar hafa tækifæri til þess að reyna að endurreisa mannorð þitt í íslensku samfélagi ef það er þér þá einhvers virði eða bara snúa í okkur rassinum og háma í þig götóttan ost í Svissnesku ölpunum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283