Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Alvarlegar ásakanir á hendur stjórn RSÍ

$
0
0

Fréttatilkynningar af vef Rithöfundasambands Íslands:

Kæru félagar.

Við í stjórn RSÍ höfum setið undir mjög alvarlegum ásökunum undanfarna daga frá félögum okkar, ásökunum um sjálftökur og óheiðarleg vinnubrögð vegna tillagna um nefndarmenn í úthlutunarnefnd launasjóðs rithöfunda sem RSÍ ber lögum samkvæmt að skila árlega til menntamálaráðherra.

Fyrirkomulag þetta er borið undir aðalfund félagsins á hverju ári og hefur enginn séð á því vankanta hingað til. Stjórnin hreyfist hratt og við erfum vinnureglur frá þeim sem fyrir voru. Meirihluti stjórnar tók sæti í fyrra og formaður í hitteðfyrra. Þrír stólar eru lausir í stjórn í vor, þar með talin sæti formanns og varaformanns.
Umrædd úthlutunarnefnd tekur líka árlega breytingum og endurnýjar sig alfarið á þriggja ára fresti. Þannig er gegnsæi mikið í þessu ferli og allir sem að málum hafa komið hafa vandað sig hið ýtrasta, leitað til fræðasamfélagsins og í þekkingarbrunninn á skrifstofu RSÍ. Að auki hefur þess sérstaklega verið gætt að úthlutunarnefnd tengist hvorki útgáfum, einstökum höfundum né stjórn RSÍ á nokkurn hátt. Þetta er vinnutilhögun sem hefur gengið á milli félagsmanna sem koma og fara úr stjórn.

Það er einnig mjög alvarlegt að saka fagfólkið, sem tók að sér vanþakkað starf úthlutunarnefndar hjá Stjórn listamannalauna, um að vera á mála hjá stjórn RSÍ.

Ekkert vinnulag er fullkomið og þaðan af síður endanlegt. Sífelldrar endurskoðunar er þörf og hér þarf að lengja arminn þótt ljóst megi vera að stjórnarmenn og framkvæmdastjóri hafi unnið sína vinnu af nákvæmni, hlutleysi og heilindum.

RSÍ átti frumkvæði að því að Bandalag íslenskra listamanna hefur nú sett á laggirnar starfshóp sem mun yfirfara verklag við skipanir úthlutunarnefnda launasjóðanna og skoða allt sem mætti betur fara í verklaginu. Í starfshópnum eru sérfræðingar af vettvangi lista- og fræðasamfélagsins sem ekki þiggja listamannalaun, m.a. fyrrverandi formaður stjórnar Listamannalauna. Við væntum þess að fá frá þessu góða fólki skýrar tillögur að vinnulagi með fjarlægð á stjórnir félaganna og hið pólitíska vald í huga, en með faglega þekkingu og kunnáttu við mat á listgreinum að leiðarljósi, eins og við höfum ætíð haft.

Þegar þessar tillögur liggja fyrir höldum við félagsfund og ræðum málin.

Með kveðju,
Kristín Helga
Formaður RSÍ
———————————————

Vegna tilnefninga til úthlutunarnefndar launasjóðs rithöfunda.

Rithöfundasambandið er bundið af lögum um listamannalaun nr. 57 frá 2009
8. gr. Launasjóður rithöfunda:

„ … Þriggja manna nefnd, sem ráðherra skipar árlega samkvæmt tillögum Rithöfundasambands Íslands, úthlutar fé úr launasjóði rithöfunda. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Úthlutunarnefndin skiptir með sér verkum.“
Stjórn RSÍ fær árlega umboð aðalfundar til að tilnefna nefndarmenn skv. þessari grein laganna.
Sitjandi stjórn RSÍ hverju sinni kemur aldrei að skipan allra í úthlutunarnefnd launasjóðs þar sem stjórn RSÍ endurnýjar sig árlega. Að auki ganga nefndarmenn út úr úthlutunarnefnd launasjóðs rithöfunda á hverju ári og enginn má sitja þar lengur en þrjú ár.

RSÍ hefur sett verklagsreglur og sækir tillögur sínar í fræðasamfélagið. Þess er einnig gætt að nefndarmenn hafi víðtæka þekkingu á bókmenntum og yfirsýn yfir ritvöllinn, ásamt því að þeir tengist hvorki forlögum né einstaka höfundum. Stjórn RSÍ hefur aldrei afskipti eða nokkra aðkomu að störfum úthlutunarnefndar.

Hvað stjórn RSÍ varðar þá sitja þar hverju sinni félagsmenn sem kjörnir eru af aðalfundi til tveggja ára í senn. Meðal þeirra eru oftar en ekki margir af virkustu höfundum landsins og það gefur auga leið að þeir hafa fullan rétt til að sækja um starfslaun þótt þeir gefi kost á sér til að starfa að félags-og hagsmunamálum stéttarinnar.

Framkvæmdastjóri RSÍ
Ragnheiður Tryggvadóttir


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283