Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kíghósti er dauðans alvara

$
0
0

Það fer allaf um mig verulegur ónotahrollur þegar ég les um börn sem smitast hafa af kíghósta á unga aldri. Sem betur fer eru tilfellin ekki mörg hérlendis, þökk sé góðu og markvissu bólusetningarkerfi ungbarna.

Ég og frumburðurinn minn smitðumst af kíghósta þá viku sem við dvöldum á fæðingardeild Landspítalans fyrir tæpum 20 árum.

Það uppgötvaðist fljótlega, en þó ekki strax. Meðgöngutími sjúkdómsins, þ.e. tíminn frá smiti þar til sjúkdómurinn kemur fram, er mislangur eða frá fimm til 15 dögum en getur einnig verið lengri. Fyrstu einkenni hans eru allt að tveggja vikna langt kvef með vægum hósta. Eftir það hefst hinn dæmigerði kíghósti.

Samkvæmt skilgreiningu á síðunni doktor.is er einkennum kíghósta lýst á þá leið að endurteknar hóstakviður standa þar til lungun tæmist af lofti, en þá tekur við djúp innöndun með hvæsandi soghljóðum sem myndast þegar loftið sogast niður um barkann. Við hóstann gengur seigfljótandi slím upp úr lungunum og algengt er að hóstahviðurnar endi með uppköstum.

Við vorum komin heim þegar einkennin fóru að koma fram. Vegna þess að fyrsta ungbarnasprauta við sjúkdómnum er ekki fyrr en um þriggja mánaða aldurinn og bóluefnið verndar ekki nema í tíu ár lágum við bæði vel við höggi. Tveir fyrir einn. Ég man hvað ég var hissa þegar við fengum greininguna, en kíghósti er eitthvað sem ég hélt að hefði nánast dáið út með víkingunum.

12443505_10209070259902621_1249704885_o

Þetta var í einu orði sagt alveg hræðilegt tímabil. Sjálf átti ég mjög erfitt og stóð oftar en ekki gersamlega á öndinni og hóstaði reglulega svo mikið að ég ældi. Ég man að ég stóð eitt sinn við skiptiborðið þar sem hann lá spriklandi og það leið nánast yfir mig eftir eina hóstakviðuna. Mér sortnaði fyrir augum og ég lak niður við hlið borðsins eins og bráðið smjör, en ef hann hefði farið á ferðina, ég hefði ekki getað bjargað honum frá falli.
Við þetta er vel hægt að ímynda sér hvernig þetta lagðist á nýfædda barnið mitt með sín varnarlausu lungu. Sýklalyf gera lítið gagn við sjúkdómnum og í okkar tilfelli var þetta meðhöndlað með pústi. Kíghóstinn er hrikalega óhugnanlegur og hann hóstaði iðulega þar til hann blánaði – oft svo mikið að ég hélt að þetta væri hreinlega að klárast.

Kíghósti getur verið dauðans alvara, en samkvæmt fyrrnefndri síðu er ungum börnum sérlega hætt við alvarlegum afleiðingum sýkingarinnar sem geta verið öndunarstopp, krampar, lungnabólga, truflun á heilastarfsemi og dauði.

Einkenni sjúkdómsins geta verið til staðar í allt að tíu vikur. Sonur minn átti þó í eftirköstum alveg fyrsta árið, en ónæmiskerfið hans hrundi og nældi hann sér í RS-vírusinn um leið og kíghóstanum sleppti.

Bólusetning er áhrifarík leið til að koma í veg fyrir sjúkdóminn hjá ungum börnum. Hér á landi eru börn bólusett við þriggja, fimm og 12 mánaða aldur og endurbólusett við fjögurra og 14 ára aldur.

Sem betur fer endaði sagan okkar vel, þó svo ég hafi efast um að það á köflum. Í dag á ég glæsilegan ungan mann í blóma lífsins. Fyrir mitt leyti er þetta ekki spurnig: bólusetjum börnin okkar.

12528217_10209070268102826_518888004_o

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283