Svanur Sigurbjörnsson læknir, sérfræðingur í lyflækningum og klínískri eiturefnafræði sendi í gær þann 19. janúar eftirfarandi minnisblað læknis til alþingismanna vegna frumvarps um rýmkum laga um verslun með áfengi. Við fengum leyfi Svans til að deila því með lesendum okkar og bendum á að minnisblaðið má nálgast hér með ítarlegri heimildaskrá. Á-að-breyta-áfengislöggjöfinni
Á að breyta áfengislöggjöfinni? Pólitísk ákvörðun.
Í vel ígrundaðri pólitískri ákvörðun koma einkum þrír þættir inni í ákvörðunarferlið:
i. Hver er þekkingarþátturinn?
ii. Hvernig á að meta viljaþáttinn (vilji þjóðarinnar)?
iii. Hvaða siðferðilegu meginlögmál koma til álita þegar málið er ígrundað?
Þekkingarþátturinn er eftirfarandi samkvæmt fjölmörgum rannsóknum:
A. Aukið framboð á áfengi þýðir aukin neysla áfengis í heildina. Eftir að bjórinn var leyfður 1989 og barir opnuðu víða í kjölfarið ásamt aukinni neyslu léttvína fór neysla áfengis úr 4.3 L/íbúa árið 1980 í 7.5 L/íbúa árið 2007. Rannsóknir sýna að einkavæðing sölunnar eykur enn neysluna.
i. Það þýðir að dagdrykkja mun aukast sem eykur:
– Fjölda fólks með áfengissýki (alkóhólisma)
– Fjölda áfengissjúkra með langvinn heilsufarsvandamál eins og:
A. Skorpulifur – leiðir oft til dauða. Þarfnast lifrarígræðslu.
– Sást sjaldan á árum bjórbannsins (fyrir 1989) sem var einstakt í heiminum.
– Tíðni hefur aukist úr 9.9 í 41.7 tilvik árlega (á 300 þús. manns) frá síðari hluta 10. áratugarins til ársins 2007.
B. Heilarýrnun – skert vitræn geta og minni.
C. Tauga- og vöðvaskemmdir – föll, brot, örorka.
D. Langvin geðræn vandamál.
E. Áfengistengd krabbamein (í munni, koki, vélinda, barka, lifur, ristli, brjóstum og brisi)
F. Brisbólgur (Bæði bráðar og langvinnar. Áfengi algengasta orsökin).
– Fjölda veikindadaga frá vinnu og fjölda fólks á örorku.
– Fjölda brotinna fjölskyldna og vanrækslu barna.
– Fjölda þeirra sem leiðast út í önnur fíkniefni.
– Fjölda þeirra sem leggjast inn á BMT LSH vegna bráðrar áfengiseitrunar.
– Fjölda tilvika þar sem áfengi er þáttur í sjálfsvígstilraunum? (með í um 50% tilvika)
– Fjölda óhappa og slysa (öðrum en vegna aksturs). Eignaskemmdir.
ii. Aukinn fjöldi tilvika drykkju við akstur
a. Aukinn fjöldi bílslysa vegna áfengis. Fötlun og dauði. Eignaskemmdir.
iii. Fleiri áfengisfíklar falli í bindindi? og eigi styttri pásur en ella?
iv. Aukið ofbeldi í þjóðfélaginu
b. Heimilisofbeldi, sérstaklega hið kynbundna og andlegt ofbeldi.
c. Tilhæfulausar árásir á vegfarendur (mikið vandamál í miðbæ Reykjavíkur þar sem vínveitingastaðir eru flestir).
d. Kynferðisofbeldi.
v. Aukin útbreiðsla kynsjúkdóma, sérstaklega meðal ungs fólks.
vi. Fósturskemmdir (Fetal alcohol syndrome) og aukinn fjöldi snemmfæðinga.
vii. Samlegðaráhrif alls að ofan til stóraukins kostnaðar fyrir ríkið (heilbrigðiskerfið) og aukins álags á bráðaþjónustu, legudeildir, löggæslu og félagslega kerfið.
B. Aukin unglingadrykkja? Einkageirinn myndi líklega auglýsa meira og fegra áfengisneysluna.
C. Líklega ósérhæfðari og lélegri þjónusta í heildina við sölu áfengis.
D. Góð fræðslustarfsemi og forvarnarstarf ÁTVR legðist af.
E. Mögulega minna vöruúrval af öðrum vörum í 24h búðum með takmarkaðan vörufjölda.
F. Betra aðgengi að áfengi á höfuðborgarsvæðinu og stærstu bæjum en ekki endilega á landsbyggðinni þar sem litlar búðir myndu ekki bera sig.
G. Einkaaðilar fengju hinn mikla gróða af áfengissölunni í stað þess að ríkið noti hann í heilbrigðiskerfið. Hækkun prósentu í forvarnir dygði skammt. Alls kyns áhrif á verslun og viðskipti – sjá greinagerð með frumvarpi.
Viljaþátturinn: Hvernig á að meta vilja þjóðarinnar?
– Fyrst að finna hver hann er
o Líta á skoðanakannanir
o Hafa þjóðaratkvæðagreiðslu um málið sem væri ráðgefandi fyrir Alþingi.
o Halda vel undirbúna þjóðfundi t.d. samkvæmt módeli Fiskins (nokkurra daga þing).
– Meta hvað eigi að gera við viljann
o Það er ekki víst að hann endurspegli upplýsta ákvörðun, sérstaklega ef að umræða fyrir ráðgefandi þjóðaratkvæði væri lítil og illa undirbúin, eða ef að um óformlega könnun væri að ræða án rökræðu á undan.
o Ef að þekkingarhlutinn leiðir í ljós að veruleg verðmæti kynnu að skaðast við rýmkun áfengislaganna er ekki víst að vilji meirihluta á nafni aukins sjálfræðis ættu að gilda. Hins vegar ætti þjóð að hafa frelsi til að velja fyrir sig þó að hún leggi sig í hættu.
o Mikilvægt að rökræðuferli fái að njóta sín fyrir atkvæðagreiðslu, annar er erfitt að sættast við almannavilja sem leggur í heilsufarslegar hættur til að auka frjálsræði þeirra sem drekka áfengi og verslunarfrelsi kaupmanna.
Siðferðilegi þátturinn – meginlögmálin:
A. Einstaklingsfrelsi. Eru það mannréttindi að vera frjáls undan afskiptum ríkisins gagnvart sölu á áfengi? Er ríkið að skerða óeðlilega neikvæða frelsið (frjálsræðið)?
B. Verslunarfrelsi
a. Meira frelsi til að versla áfengi ,en
b. Mögulega skert vöruúrval annarra vara í litlum búðum. (það selt sem selst best).
C. Verndun barna – hvað segir það börnum um eðli áfengis að það sé í öllum matvörubúðum?
D. Verndun áfengissjúkra. Með því að hafa ákveðið aðhald og þrengja hér neikvæða frelsið (í núverandi mynd) eykst jákvæða frelsið, þ.e. vald þeirra yfir eigin gjörðum og farsæld.
E. Þjóðfélagsleg skilaboð um áfengi til allra – aukið framboð normaliserar áfengisnotkun.
—————————————
Hvað ákveður þú kæri alþingismaður?
Niðurstaða mín er skýr: Áfengislögin á ekki að rýmka. Óþægindi sumra vegna skerts verslunarfrelsis í núverandi fyrirkomulagi eru ásættanleg miðað við þau umfangsmiklu neikvæðu áhrif sem aukin áfengisneysla hefði í för með sér í kjölfar aukins framboðs. Skerðing á þessu ytra/neikvæða frelsi veitir fullt af fólki meira innra/jákvætt frelsi yfir lífi sínu og heilsu. Áfengi er ekki matvara og meðalhóf þess er vandratað. Ríkið hefur mikil tækifæri til að hafa áhrif á heilsu þjóðarinnar. Við þurfum ekki að kalla yfir okkur frekari heilsufarsvandamál með auknu verslunarfrelsi sem er ekki aðkallandi breyting. Neysla og sala áfengis kallar á gott jafnvægi frelsis og varúðar sem er nú til staðar og er óvarlegt að raska.
Svanur Sigurbjörnsson læknir, sérfræðingur í lyflækningum og klínískri eiturefnafræði.