UPPFÆRT klukkan 20:30 13.febrúar 2016.
Nú hafa ríflega 72.000 skrifað undir áskorun Kára Stefánssonar um endurreisn heilbrigðiskerfisins á vefsíðunni Endurreisn.is og er hún því orðin langstærsta undirskriftasöfnun landsins.
Fyrrum fjölmennasta undirskriftasöfnun landsins, sem var gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar árið 2013 náði ekki 70.000 undirskriftum og aðrar slíkar, s.s. gegn Icesave II samningunum voru með um 56.000 nöfn á lista. Söfnun gegn beitingu hryðjuverkalaga 2008 gaf upp 83.353 undirskriftir en óljóst er hversu margir Íslendingar voru þar á lista.
Fjölmargir landsþekktir aðilar hafa lagt átakinu lið, þar á meðal Halldóra Geirharðsdóttir leikkona, Styrmir Gunnarsson fyrrum ritstjóri Morgunblaðsins, Bylgja Kærnested hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri hjartadeildar LSH, Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari og Þórarinn Tyrfingsson læknir.
Enn er rífandi gangur í undirskriftarsöfnuninni og þú getur skrifað undir þá kröfu að endurreisa heilbrigðiskerfið hér.
Myndband Bylgju Kærnested má horfa á hér:
Bylgja KærnestedBylgja Kærnested hjúkrunarfræðingu og deildarstjóri hjartadeildar LHS
Posted by Endurreisum heilbrigðiskerfið on Thursday, 11 February 2016