Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Áskorun til Seðlabanka Íslands

$
0
0

Áskorun til Seðlabanka Íslands um að birta yfirlit yfir undanþágur föllnu bankanna og stöðugleikamat á nauðasamningum þeirra

Í gær lýsti Seðlabanki Íslands því yfir að hann hafi veitt síðustu undanþáguna frá fjármagnshöftum vegna uppgjörs fallinna viðskiptabanka og sparisjóða á grundvelli stöðugleikaskilyrða.

Kröfuhafar slitabúa föllnu bankanna eru því lausir undan fjármagnshöftum og fara úr landi með risavaxnar upphæðir og starfsmenn þeirra hafa fengið greidda ríflega bónusa. Á sama tíma eru fjármagnsflutningar almennings, atvinnulífs og lífeyrissjóða enn háðir verulegum takmörkunum án þess að birt hafi verið áætlun um það hvenær og hvernig þeim verður aflétt.

Stöðugleikamat Seðlabanka

Það er veruleg hætta á að nauðasamningar föllnu bankanna geti haft skaðleg áhrif á framgang áætlunar um afnám hafta og almenn lífskjör á Íslandi. Af þessum ástæðum breytti Alþingi lögum þannig að dómari mætti ekki staðfesta frumvarp að nauðasamningi fjármálafyrirtækis nema að mat Seðlabanka Íslands hafi sýnt að viðkomandi samningur raski ekki efnahagslegum stöðugleika á Íslandi.

Í samræmi við loforð stjórnvalda um gagnsæi við losun fjármagnshafta óskar InDefence hópurinn eftir því að Seðlabanki Íslands birti stöðugleikamat fyrir sérhvert slitabú fjármálafyrirtækis sem lagt hefur fram nauðasamninga.

Upplýsingar um undanþágur frá gjaldeyrishöftum

Jafnframt óskar hópurinn þess að Seðlabankinn geri grein fyrir öllum undanþágum frá gjaldeyrishöftum sem hafa verið veittar. Nánar tiltekið er óskað eftirfarandi upplýsínga : Óskað er eftir yfirliti um upphæðir og viðtakendur á erlendum gjaldeyri eða erlendum eignum sem undanþegnar hafa verið höftum.

1. Undanþágur sem veittar hafa verið til gjaldeyrisviðskipta þar sem íslenska krónan er annar eða einn gjaldmiðlanna í samræmi við neðangreint.

2. Undanþágur sem veittar hafa verið til fjármagnshreyfinga erlendra eigna (þar með talið undanþágur tengdar innlánum í erlendum gjaldeyri hjá innlendum banka sem greiddar eru út erlendis) í samræmi við neðangreint.

Fyrir innlenda aðila er beðið um samanlagðar upphæðir undanþága fyrir eftirfarandi hópa: 1) fjármálafyrirtæki í slitameðferð, 2) fjármálafyrirtæki sem lokið hafa slitameðferð (og voru áður fjármálafyrirtæki) 3) lífeyrissjóði og 4) aðrir innlendir aðilar.

Fyrir erlenda aðila er beðið um samanlagðar upphæðir undanþága sem veittar hafa verið eftirfarandi hópum: 1) forgangskröfuhafar fallinna fjármálafyrirtækja, 2) almennir kröfuhafar fallinna fjármálafyrirtækja, 3) eigendur og kröfuhafar fyrirtækja sem lokið hafa nauðasamningi og 4) aðrir
erlendir aðilar.

Þrátt fyrir fögur fyrirheit hefur upplýsingastreymi frá stjórnvöldum um áætlun um afnám fjármagnshafta verið takmarkað og á köflum misvísandi. Leyndarhyggja elur á tortryggni. Þar sem stjórnvöld hafa væntanlega ekkert að fela og allar upplýsingar liggja fyrir, hvetjum við Seðlabanka Íslands til veita þær strax.

Reykjavík, 19. febrúar 2016.

f.h. InDefence hópsins,
Dr. Agnar Helgason, mannfræðingur
Davíð Blöndal, eðlis- og tölvunarfræðingur
Ólafur Elíasson, MBA
Ragnar Ólafsson, félagssálfræðingur
Dr. Sveinn Valfells, eðlis- og hagfræðingur
Dr. Torfi Þórhallsson, verkfræðingur


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283