Sæmundur Rögnvaldsson formaður félags læknanema tekur undir kröfuna um endurreisn heilbrigðiskerfisins en nú hafa tæplega 79,000 manns skrifað undir á Endurreisn.is:
Ég er búinn að vera í verknámi í eitt og hálft ár á Landspítala. Á þeim tíma hef ég séð með eigin augum hvernig legudeildir hafa breyst í hjúkrunarrými, hvernig bráðamóttökur hafa breyst í legudeildir og í rauninni hvernig kerfið er eiginlega sprungið.
Á þessum tíma hef ég líka fengið að fylgjast með öllu því frábæra fólki sem starfar innan heilbrigðiskerfisins og fengið að sjá hvað þau geta gert ótrúlega góða hluti úr þessum aðstæðum sem þau eru í.
Ég held það sé kominn tími til að við búum til aðstæður sem magna þetta frábæra fólk upp í staðin fyrir að draga það niður og þess vegna skrifa ég undir á www.endurreisn.is.
Sæmundur RögnvaldssonSæmundur Rögnvaldsson formaður félags læknanema segir:Ég er búinn að vera í verknámi í eitt og hálft ár á Landspítala. Á þeim tíma hef ég séð með eigin augum hvernig legudeildir hafa breyst í hjúkrunarrými, hvernig bráðamóttökur hafa breyst í legudeildir og í rauninni hvernig kerfið er eiginlega sprungið. Á þessum tíma hef ég líka fengið að fylgjast með öllu því frábæra fólki sem starfar innan heilbrigðiskerfisins og fengið að sjá hvað þau geta gert ótrúlega góða hluti úr þessum aðstæðum sem þau eru í. Ég held það sé kominn tími til að við búum til aðstæður sem magna þetta frábæra fólk upp í staðin fyrir að draga það niður og þess vegna skrifa ég undir á www.endurreisn.is.
Posted by Endurreisum heilbrigðiskerfið on Sunday, 21 February 2016