Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Glæsileg vín í fallegum umbúðum

$
0
0

Glæsileiki frá Piemonte á Ítalíu

Santero-vínfyrirtækið var stofnað árið 1958 í Piemonte á Ítalíu og er orðinn einn stærsti freyðivínsframleiðandinn á Ítalíu og þótt víðar væri leitað.

santero vinyard

 

Aðaláherslan hjá þeim er framleiðsla á gæða freyðivínum enda eru þau langmest seldu freyðivínin á Íslandi. Má þar t.d. nefna Santero Moscato og Santero Prosecco. Santero framleiðir ekki bara freyðivín og nýlega komu í Vínbúðirnar glæsilegar flöskur frá þeim, rósavín, hvítvín, rauðvín og eftirréttavín. Eins og sést eru flöskurnar hinar glæsilegustu og mikið lagt í hönnun þeirra. Vínið sjálft er ekki síðra og svo er það á afar hagstæðu verði. Það er ekki leiðinlegt að koma færandi hendi með slíka gersemi þegar boðið er í matarboð.

Dile D Rosa kr. 1.970

dile rosa

Rósavín hafa því miður ekki verið sérlega vinsæl á Íslandi undanfarin ár og ástæðan kannski sú að eingöngu voru til léleg rósavín hér á árum áður. Þetta er sem betur fer að breytast og það er í takt við það sem er að gerast erlendis. Gott rósavín er frábær valkostur og þetta ætti að falla vel í kramið. Í nefi má finna blóm eins og rósir og fjólur og smá kirsuber. Í munni rauð ber, eplahýði og jarðarber. Þetta vín passar vel með léttum pastaréttum, hvítu kjöti og léttum fiskréttum. Það er náttúrlega frábært eitt sér.

Dile D Bianco kr. 1.970

dile bianco

Í þetta vín er notuð blanda af hvítvínsþrúgum frá svæðinu og árangurinn ansi skemmtilegur. Í nefi má finna ávexti og blóm og í munni er það vel þurrt með bragði af stjörnuávöxtum o.fl. Ferskt vín sem smellpassar sem fordrykkur, með smáréttum og léttum fiskréttum.

Dile D Rosso kr. 2.150

dile rosso

Eins og hvítvínið er hér notast við ýmsar staðbundnar þrúgur eins og t.d. nebbiolo o.fl. Vínið hefur fallegan rúbínrauðan lit og í nefi má finna ávexti og nýtínd blóm. Vínið er þurrt og þar má finna rauð ber og vanillu og vínið er í góðu jafnvægi. Þetta fína rauðvín smellpassar með öllu rauðu kjöti og krydduðum ostum.

Dile D Moscato kr. 1.090

dile moscato

Það er stundum erfitt að finna eftirréttavín á skaplegu verði en hér er eitt slíkt. Það er að sjálfsögðu sætt og í nefi má finna ferskleika, ávexti og blóm og smá peru. Í munni vínber, ferskju og peru. Passar vel með hinum ýmsu eftirréttum eins og t.d. kökum. Það er náttúrlega dásamlegt að bjóða vinkonunum upp á þetta vín ískalt þegar þær koma í heimsókn og gott að eiga alltaf eina slíka í ísskápnum enda ætti verðið ekki að vera nein fyrirstaða.

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283