Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Við staðsetningu nýs Landspítala þarf að horfa áratugi fram í tímann

$
0
0

Hugmynd að staðsetningu LSH til framtíðar

 Ég hef fylgst vel með umræðum og vangaveltum um staðsetningu Landspítalans frá því það var byrjað að tala um að byggja hann upp frá grunni og það sem ég hef alltaf furðað mig á er sú dæmalausa þrjóska og þröngsýni að troða honum niður nánast í miðbænum þar sem núverandi LSH er staðsettur.

Ég held … Nei.  Ég er alfarið á móti því að þær hugmyndir verði að veruleika enda á að byggja upp sjúkrahússvæði sem á að þjóna landinu öllu næstu hálfa til heilu öldina og þá þýðir ekkert að vera að með rörsýn á það hvar nýr Landspítali á að rísa, það þarf að færa hann vel út fyrir borgina þar sem aðgengi frá öllum landshlutum að honum yrði greið og auðveld en þá þarf líka að hugsa fyrir því, hanna umferðarmannvirki sem tengja saman Suðurlandsveginn og Vesturlandsveginn með tveim tvöföldum akreinum í hvora átt, undirgöngum og mislægum gatnamótum til að sem minnstar tafir verði á umferð og hægt verði að halda hámarkshraða fram hjá tilvonandi sjúkrahússvæði.

Rifrildið um Reykjavíkurflugvöll gæti heyrt sögunni til ef ráðamenn taka höndum saman og leggja það tilgangslausa rifrildi á hilluna og þá sérhagsmuni sem nú virðast ráða för í flugvallarmálinu, færa bara flugvöllinn með öllu sem tilheyrir inn á Mosfellsheiði, nokkra kílómetra frá þeim stað sem sjúkrahúsinu yrði valinn staður og koma á föstum ferðum með langferðabílum eða fluvallarrútum niður í samgöngumiðstöðina við Vatnsmýri eða niður í miðbæ Reykjavíkur.

 Ef við skoðum hvernig þróun byggðar á höfuðborgarsvæðinu hefur verið síðustu tvo áratugi þá sjáum við hvernig byggðin hefur verið að teygja sig upp á og yfir Grafarholtið og áfram austur og inn á heiðina.  Ef við hugsum okkur nú að sú þróun haldi áfram næstu tuttugu til þrjátíu ár þá er ljóst að byggðin mun fljótlega ná upp að Hafravatni og breiða úr sér í gegnum svæðið í kringum vatnið og sameinast að lokum Mosfellsbænum ef mín framtíðarsýn verður að veruleika.

Núverandi staðsetning LSH einkennist af slæmri aðkomu á allann hátt.

Núverandi staðsetning LSH einkennist af slæmri aðkomu á allann hátt.

Þess vegna þurfa ráðamenn þjóðarinnar á næstu árum og áratugum að veita margföldu því fé sem nú er ráðgert til uppbyggingar nýs Landspítala í það verkefni að færa bæði LSH og flugvöllinn vel út fyrir borgina þangað sem byggð nær ekki á næstu áratugum og skipuleggja svæðið í kringum LSH þannig að sómi sé að, fólk geti gengið niður að vatninu og ekki verði farið að troða íbúðarbyggð í kringum sjúkrahúsið og nánasta umhverfi því það hefur sýnt sig að sá ófriður sem stafar af byggð og þungri umferð í kringum sjúkrahús hvar sem er í heiminum hægir á bata fólks og eykur stress og streitu hjá því.  Því þarf að halda svæðinu frekar hreinu af umferð og byggð þar sem sjúklingar geta slakað á og byggt sig upp meðan á innlögn stendur.

Flugvöllinn væri síðan best að hafa minnst sjö kílómetra inni á heiðinni þar sem minnst truflun yrði af völdum flugvéla í lendingum og flugtaki og sjúkraflugi yrði beint á einn fyrirfram ákveðinn stað þar sem yrði byggð hraðbraut beint að skýli neyðarbíla og bráðamóttöku sem yrði eingöngu fyrir sjúkraflutninga. Þyrlupallur yrði einnig á sama stað og aðkoma sjúkrabíla svipað og nú er við LSH í Fossvogi.

Svæðið sem ég hef í huga stendur við austurhluta Hafravatns í nokkuð brattri hlíð sem snýr til suðurs og ég sé fyrir sjúkrahús sem stendur á stöllum í hlíðinni og liggur í sveig frá austri, vestur eftir hlíðinni og til norðurs.  Aðkoma fyrir þyrlu og sjúkrabíla yrði á efsta stalli á toppi fellsins og síðan deildirnar hver af annarri niður eftir hlíðinni með góðu og sólríku útisvæði framan við hverja deild og þá væri hægt að hafa öldrunar og langtímalegudeildir á neðstu hæðunum með gott aðgengi niður að vatninu og gönguleiðum þar í kring.

Byggjum til framtíðar.

Byggjum til framtíðar.

Vissulega kosta svona framkvæmdir hundruð milljarða í framkvæmd og tæki langan tíma í uppbyggingu en kosturinn er samt sem áður sá að svæðið er stórt og lengi hægt að bæta við ef á þarf að halda áratugi fram í tímann.  Í þetta verkefni má ekkert spara og til þess að þetta geti orðið að veruleika þarf að taka rækilega til í öllu stjórnkerfinu í landinu, útrýma þeirri gegndarlausu spillingu og græðgispólitík sem tröllríður þessu þjóðfélagi sem er í raun á góðri leið með að leggja það í rúst, koma þeirri stjórnarskrá sem samþykkt var 2012 af þjóðinni í gegnum Alþingi og byrja að starfa eftir henni svo þjóðin fái notið góðs af þeim gífurlegu verðmætum sem þjóðin á í eigu sinni en fær ekki notið nú um stundir.

Ég ætla ekki að reyna að teikna neitt af þessu upp sem ég hef fjallað um hér að ofan en set loftmyndir af svæðinu með í pistilinn til að fólk átti sig á staðsetningunum og hvet fólk til að skoða þetta með opnum huga því það er mín bjargfasta trú að þetta yrði þjóðinni allri fyrir bestu eins og staðan er í dag.  Bútasaumur og bráðabirgðaviðgerðir á núverandi sjúkrahúsi kostar samfélagið í raun meira heldur en þær hugmyndir sem ég er að viðra hér að ofan og sé rétt haldið á hlutunum í þessu máli gætu Íslendingar eignast besta háskólasjúkrahús í heimi með bestu fáanlegum tækjum og aðstöðu sem völ er á.

En til að svo geti orðið, þá má ekki kasta til höndunum eða spara í þeim efnum því við höfum alveg efni á þessu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283