Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Lady Gaga sýnir þolendum kynferðisofbeldis stuðning

$
0
0

Varaforseti Bandaríkjanna Joe Biden flutti tilfinningaþrungna ræðu á Óskarsverðlaunahátíðinni í gær og talaði um að það þyrfti að stöðva kynferðisofbeldi í háskólum landsins. Hann kynnti síðan Lady Gaga á svið sem flutti lagið „Til it happens to you“ sem hún samdi ásamt Diane Warren. Lagið sem tilnefnt var til Óskarsverðlauna sömdu þær fyrir heimildamyndina „The Hunting Ground“ sem fjallar um alvarlegt og útbreitt kynferðisofbeldi í Háskólum Bandaríkjanna.

Lady Gaga vakti verðskuldaða athygli með mögnuðum flutningi sínum og á sviðinu var með henni fjöldi einstaklinga sem flögguðu skilaboð eins og:

„Við trúum ykkur“, „Breytingar eru á okkar valdi“, „Stöðvum kynferðisofbeldi“

Heimild LAtimes


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283