Fréttatilkynning:
Kvikmyndin Hrútar sópaði til sín verðlaunum á Eddunni 2016 sem haldin var í gærkvöld á hótel Hilton Reykjavík Nordica og fékk alls 11 verðlaun, meðal annars sem kvikmynd ársins, fyrir leikstjórn, handrit, kvikmyndatöku og klippingu.

Grímur Hákonarson leikstjóri og handritshöfundur Hrúta
Leikkona ársins í aðal- og aukahlutverkum úr sjónvarpsþáttaröðinni Réttur, þær Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Birna Rún Eiríksdóttir hlutu sína Edduna hvor og leikari ársins í aðal- og aukahlutverkum voru valdir þeir Sigurjón Sighvatsson og Theodór Júlíusson fyrir leik sinn í kvikmyndinni Hrútar.
Sjónvarpsþáttaröðin Ófærð var valið leikið sjónvarpsefni ársins og titillinn sjónvarpsmaður ársins kom í hlut Helga Seljan. Stuttmyndin Regnbogapartý og heimildamyndin Hvað er svona merkilegt við það? unnu Edduna hvor í sínum flokki.

Ragna Fossberg
Ragna Fossberg, sem ber með sanni réttnefnið förðunarmeistari Íslands, hlaut Heiðursverðlaun Eddunnar 2016.
Kynnir Eddunnar var grínleikkonan Anna Svava Knútsdóttir.

Anna Svava Knútsdóttir
Eftirtalin verk og einstaklingar unnu til verðlauna á Eddunni:
BARNA- OG UNGLINGAEFNI ÁRSINS
Ævar vísindamaður
BRELLUR ÁRSINS
Sigurjón F. Garðarsson, Daði Einarsson og RVX – Ófærð
BÚNINGAR ÁRSINS
Margrét Einarsdóttir og Ólöf Benediktsdóttir – Hrútar
FRÉTTA- EÐA VIÐTALSÞÁTTUR ÁRSINS
Kastljós
GERVI ÁRSINS
Kristín Júlla Kristjánsdóttir – Hrútar
HANDRIT ÁRSINS
Grímur Hákonarson – Hrútar
HEIMILDAMYND ÁRSINS
Hvað er svona merkilegt við það?
HLJÓÐ ÁRSINS
Huldar Freyr Arnarsson og Björn Viktorsson – Hrútar
KLIPPING ÁRSINS
Kristján Loðmfjörð – Hrútar
KVIKMYND ÁRSINS
Hrútar
KVIKMYNDATAKA ÁRSINS
Sturla Brandth Grövlen – Hrútar
LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Sigurður Sigurjónsson – Hrútar
LEIKARI ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Theodór Júlíusson – Hrútar
LEIKIÐ SJÓNVARPSEFNI ÁRSINS
Ófærð
LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir – Réttur
LEIKKONA ÁRSINS Í AUKAHLUTVERKI
Birna Rún Eiríksdóttir – Réttur
LEIKMYND ÁRSINS
Bjarni Massi Sigurbjörnsson – Hrútar
LEIKSTJÓRN ÁRSINS
Grímur Hákonarson – Hrútar
LÍFSSTÍLSÞÁTTUR ÁRSINS
Ævar vísindamaður
MENNINGARÞÁTTUR ÁRSINS
Öldin hennar
SJÓNVARPSMAÐUR ÁRSINS
Helgi Seljan
SKEMMTIÞÁTTUR ÁRSINS
Árið er: Söngvakeppnin í 30 ár
STUTTMYND ÁRSINS
Regnbogapartý
TÓNLIST ÁRSINS
Jóhann Jóhannsson, Hildur Guðnadóttir og Rutger Hoedemækers – Ófærð
HEIÐURSVERÐLAUN EDDUNNAR 2016
Ragna Fossberg