Erlingur Gíslason leikari lést þann 8. mars síðastliðinn á heimili sínu í Reykjavík. Í dánartilkynningu er birt var í Morgunblaðinu segir:
„Erlingur Gíslason leikari lést á heimili sínu hinn 8. mars á 83. aldursári. Erlingur fæddist í Reykjavík 13. mars 1933, sonur hjónanna Gísla Ólafssonar bakarameistara og Kristínar Einarsdóttur húsmóður. Systkini Erlings eru Anna, f. 30.12. 1924, húsmæðrakennari í Reykjavík, og Einar Ólafur, f. 6.4. 1929, flugstjóri í Reykjavík, en hann lést 6.2. 2011.
Erlingur lauk stúdentsprófi frá MR 1953, stundaði nám í íslensku við HÍ 1953-54, lauk prófi í forspjallsvísindum frá HÍ 1954, prófi frá Leiklistarskóla Þjóðleikhússins 1956, stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík 1953-54, nam leikhúsfræði við Háskólann í Vínarborg og leiklist við Leiklistarskóla Helmuts Kraus í Vín 1956-57, sótti leiklistarnámskeið í London og Berlín 1965-66 og námskeið í gerð kvikmyndahandrita hjá Dramatiska Institutet í Svíþjóð.
Erlingur var leikari og leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu, leikhópnum Grímu og Leikfélagi Reykjavíkur og fór með fjölda hlutverka í útvarpi, sjónvarpi og í kvikmyndum. Erlingur var einn af stofnendum Leikklúbbsins Grímu 1961, var formaður Leikarafélags Þjóðleikhússins 1967-69 og Félags íslenskra leikstjóra 1975-77 og 1979-81.
Hann var fulltrúi Alþýðubandalagsins í Reykjavík á landsfundum Alþýðubandalagsins frá 1987 og sat í framkvæmdarstjórn Leiklistarráðs fyrir Félag leikstjóra á Íslandi 1990-91.
Erlingur samdi, ásamt seinni eiginkonu sinni, Brynju Benediktsdóttur leikstjóra, leikritið Flensað í Malakoff og leikritið Flugleik ásamt fleirum. Erlingur skrifaði handrit að stuttmyndinni Símon Pétur fullu nafni 1988, en fyrir handritið hlaut Erlingur verðlaun Listahátíðar í Reykjavík 1988.
Árið 2008 sæmdi forseti Íslands Erling riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til íslenskrar leiklistar.
Fyrri eiginkona Erlings var Katrín Guðjónsdóttir, f. 27.3. 1935, ballett- og gítarkennari. Þau skildu 1961, en hún lést 2.3. 1996. Synir þeirra eru Guðjón, f. 15.12. 1955, verkfræðingur og Friðrik, f. 4.3. 1962, rithöfundur og skáld.
Seinni eiginkona Erlings var Brynja Benediktsdóttir, leikstjóri, leikskáld og leikari, f. 20.2. 1938. Hún lést 21.6. 2008. Sonur þeirra er Benedikt, f. 31.5. 1969, leikari, leikstjóri og kvikmyndahöfundur.
Jarðarförin verður auglýst síðar.“
Fjölmargir samstarfsmenn hafa minnst Erlings á samfélagsmiðlum og við skulum gefa þeim orðið:
Erlingur Gíslason leikari er látinn, á 83. aldursári. Hann var um áraraðir í framvarðasveit leikara Þjóðleikhússins, en…
Posted by Þjóðleikhúsið on Thursday, 10 March 2016
ERLINGUR GÍSLASON var einhver ljúfasti leikari sem ég hef unnið með. Ég var svo lánsamur að fá að leikstýra honum í Þj…
Posted by Vidar Eggertsson on Thursday, 10 March 2016