Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Erlingur dáinn, farinn, ekki meir

$
0
0

Guðrún Snæfríður Gísladóttir leikkona skrifar minningarorð um leikarann Erling Gíslason en útför hans fór fram í Dómkirkjunni klukkan 15.00 í dag.

Helst vildi ég kalla hann gæðinginn á sviðinu, en eru gæðingar ekki alltaf svo þægir? Og Erlingur var ekki þægur, sem betur fer. Hann fór sínar leiðir með sínar áherslur og var þess vegna óútreiknanlegur að horfa á og hlusta. Ef Erlingur var á sviðinu fylgdist ég alltaf með honum frá því ég man eftir mér, ég var alltaf hrædd um að hann gerði eitthvað sem ég annars missti af. Mér fannst hann alltaf fullnægjandi.

Hvort hann var sextugur eða sjötugur man ég ekki alveg, þegar ég fór þess á leit við hann í afmælinu að leika með mér sisvona nokkrar stuttmyndir eftir handritum Yoko Ono sem hún gaf út öllum til frjálsra afnota, helvíti sem hefði mátt verða af því.

En mörgum sinnum fékk ég þó að vinna með honum og fannst það alltaf jafn spennandi og gefandi.

Ég þakka þessum gáfaða og glæsilega leikara samfylgdina og harma að fá ekki lengur að horfa á hann vinna. En lykillinn að skápnum í herberginu okkar á efstu hæð Þjóðleikhússins verður áfram geymdur á góðum stað.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283