Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Raddir fólksins #borgarafundur – Heilbrigðismálin

$
0
0

Ríkisútvarpið stóð fyrir borgarafundi í Háskólabíói í kvöld sem var rétt í þessu að ljúka. Tilefnið var að ræða heilbrigðismálin en með sanni má segja að þau hafi verið í brennidepli að undanförnu. Undirskriftasöfnun sem Kári Stefánsson setti af stað hefur skilað því að tæplega 85.000 einstaklingar hafa skrifað undir kröfuna um endurreisn heilbrigðiskerfisins. Ekki var fjölmennt í Háskólabíó enda var viðburðurinn heldur illa auglýstur en þátttaka fólks á samfélagsmiðlum var hinsvegar töluverð en þar lét fólk óspart í ljós skoðanir sínar.

Birgir Jakobsson landlæknir, Páll Matthíasson forstjóri Landspítalans, Arna Guðmundsdóttir formaður Læknafélags Reykjavíkur og Hildigunnur Svavarsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Sjúkrahúsinu á Akureyri sátu fyrir svörum í fyrri hluta þáttarins en í seinni hluta sátu fulltrúar stjórnmálaflokkanna einnig fyrir svörum, þau Árni Páll Árnason Samfylkingunni, Óttar Proppe, Bjartri framtíð, Ásta Guðrún Helgadóttir Pírötum, Katrín Jakobsdóttir Vinstri græn, Kristján Þór Júlíusson Sjálfstæðisflokki og Sigurður Ingi Jóhannsson frá Framsóknarflokknum. Einnig var tekið við fyrirspurnum úr sal.

Fólk sendi inn fyrirspurnir í gegnum tölvupóst en einnig tjáði fólk sig meðal annars á samfélagsmiðlinum Twitter undir myllumerkinu #borgarafundur

Elísabet Sig sendi þessi skilboð á Twitter:

„27 ára syni mínum var neitað um innlögn á bráðasviði geðdeildar í nóvember 2008. Við fjölskyldan og hann sjálfur báðum fagaðila og lækna aðstoðar en fengum neitun… það er ekkert pláss – við erum að loka bráðum, athugaðu á morgun ef þú versnar eða finnur fyrir sjálfsvígshugsunum og hann var sendur heim með kvíðalyf og beðinn um að hvílast.

Næsta morgun ræddum við saman í síma  og ég bað hann að fara aftur og biðja um hjálp en þá sagði hann: „Þeir vilja ekki hjálpa mér.“ Tveimur sólarhringum síðar var þessi ungi maður fallinn fyrir eigin hendi.“

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283