Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

„…veltum við hverjum steini“ – Umfjöllun sænska sjónvarpsins um forsætisráðherra

$
0
0

Í fréttaþættinum Agenda í sænska ríkissjónvarpinu SVT var fjallað um málið, og hófst sú umfjöllun á þessum orðum:

„Í kvöld afhjúpar SVT í samvinnu við alþjóðlegt net blaðamanna að stjórnmálamenn í æðstu stöðum, einræðisherrar, fótboltastjörnur og fíkniefnamafían geyma óheyrilegar upphæðir í skattaskjólum. Meðal nafnanna í gögnunum sem lekið var frá lögfræðistofunni í Panama er forsætisráðherra Íslands, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, og nú þegar heyrast kröfur um að hann segi af sér.“

Síðan er sagt frá þvi að áður en Sigmundi sé komið í opna skjöldu með spurningum um eignarhald hans á fyrirtæki í skattaskjóli tali hann um hversu mikilvægt sé að endurskapa traustið eftir fjármálakreppuna á Íslandi, og sýndur sá hluti viðtalsins þar sem hann segir að í þeim tilgangi „viljum við sýna að við veltum við hverjum steini“.

Þáttinn er hægt að sjá í heild sinni hér.

Screen Shot 2016-04-03 at 21.24.26


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283