Jóhanna Sigurðardóttir fyrrum forsætisráðherra sagði eftirfarandi á Facebook í gærkvöldi eftir að Kastljós þátturinn um Panama-lekann hafði verið sýndur:
„Forsætisráðherra verður strax að segja af sér og ríkisstjórnin öll að fara frá. Það er ekki bara trúverðugleiki þjóðarinnar gagnvart alþjóðasamfélaginu sem er í húfi – heldur mun þjóðin aldrei líða það sem ráðamenn hafa orðið uppvísir að.
Það hefur myndast algjör trúnaðarbrestur milli ríkisstjórnarinnar og fólksins í landinu. Uppþot og reiði í samfélaginu verður ekki minni nú en í hruninu.
Fólk vill ekki hafa forsætisráðherra sem það þarf að skammast sín fyrir – forsætisráðherra sem uppvís hefur orðið að blekkingum og óheiðarleika – forsætisráðherra sem lýst hefur vantrausti á gjaldmiðilinn og íslenskt efnahagsumhverfi með því að fela fjármagn sitt í skattaskjóli – forsætisráðherra sem virðist ekki skilja hvað siðferði er og vill fá sjálfur að setja sér sínar eigin siðareglur – forsætisráðherra sem er nú settur í hóp með siðspilltum valdamönnum í heiminum.
Forsætisráðherra skuldar þjóð sinni að fara frá strax og koma í veg fyrir uppreisn í samfélaginu.„
Forsætisráðherra verður strax að segja af sér og ríkisstjórnin öll að fara frá. Það er ekki bara trúverðugleiki þjóð…
Posted by Jóhanna Sigurðardóttir on Sunday, 3 April 2016