Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Forsætisráðherra: Kosningar grafa undan stöðugleika

$
0
0

Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra hvatti þingmenn til að fella vantrauststillögu minnihlutans. Hann sagðist telja að þingrof og kosningar myndu grafa undan stöðugleika. Hinn nýi forsætisráðherra færði þannig ábyrgðina á óstöðugleika síðustu vikna á herðar almennings í stað flokksfélaga í Framsóknarflokknum, eigin formanns og samstarfsflokksins.

Forsætisráðherra lét þess ógetið að falinn auður fyrrverandi forsætisráðherra Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í skattaskjólum skapaði fordæmalausan óstöðugleika.

Hann lét þess ógetið að lygaherferð fyrrverandi forsætisráðherra og viðbrögð við uppljóstruninni teygði úr óstöðugleikanum.

Hann sá ekki ástæðu til að nefna að hysterísk viðbrögð stjórnarflokkanna grófu undan trausti.

Þá taldi hann þrásetu Bjarna Benediktssonar, fjármálaráðherra í skattaskjóli, ekki hættulegri stöðugleika en krafa mótmælenda um kosningar. Minna hættuleg væri Ólöf Nordal innanríkisráðherra sem fór með umboð og ætlaði að nýta skattaskjólsfélag.

Forsætisráðherrann nýi hefur þegar sagt að ekkert sé að því að vera með peninga í skattaskjólum og að flókið sé að eiga peninga á Íslandi. Nú gefur hann í með því að saka almenning um að valda óstöðugleika með kröfu um kosningar.

Ríkisstjórn Sigurðar Inga Jóhannssonar hefur störf í vörn vegna vantrauststillögu stjórnarandstöðunnar. Tillagan er nú til umræðu á Alþingi en fátt bendir til annars en að stjórnarþingmenn ætli að verja eigin ríkisstjórn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283