Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Að henda eða ekki henda, það er spurningin …

$
0
0

Jæja, kemur heimilið svolítið klístrað undan vetrinum? Það gerist nú á bestu bæjum að dót og drasl byrjar að vella út úr skápum á þessum árstíma. Skítugum skápum í þokkabót, eða svona hjá okkur mörgum.  Ég hef litla reynslu af hvernig best er að þrífa skápana. En hins vegar eru til sérfræðingar sem hafa um það að segja. Held að við þekkjum flest allavega einn svoleiðis sem gæti gefið okkur góð ráð.

Aftur á móti hef ég nokkuð sterkar skoðanir á því hvað skal gera við dótið. Það er einfalt. Ég skipti því upp í þrjá flokka: nota, geyma, henda.

Dót sem á að nota finn ég viðeigandi stað á heimilinu, þar sem er gott að ná í það og helst er bara einn staður fyrir það dót, ekki margir. Það gengur til dæmis ekki upp að hafa lykla hingað og þangað um húsið. Í forstofunni eru krókar fyrir lykla.  Það er kostur ef allir fjölskyldumeðlimir eru sammála um þessa einu sönnu staðsetningu hlutanna. Og það er líka gott að nokkuð skynsamlegt samhengi sé í því hvað er geymt með hverju. Eins og að geyma skógljáann nálægt skónum, plastpoka nálægt sorpi og allt það. En það er svosem efni í sér grein, eða bara bók.

Dót sem skal geyma er vandvalið. Að eiga góða geymslu er gott mál, jafnvel fallegt háaloft þar sem saga fjölskyldunnar er geymd samviskusamlega. En það er nú samt ekki raunveruleiki margra, flest erum við þakklát fyrir smá geymslukompu með skjálfandið hilluræflum. Tala nú ekki um öll rykugu háaloftin sem er búið að breyta í sjónvarpskrók.  Sumir segja að það jafngildi andlegri hreinsun að taka til á háaloftinu og henda gömlu dóti. En ég sé samt enn þá eftir að hafa hent buffalóskónum mínum rétt áður en þeir urðu viðurkenndur grímupartífatnaður.

En mér þykir mjög vænt um litlu geymsluna í kjallaranum heima, þar sem ónotaðir hlutir fjölskyldunnar hvíla, sumt gangnlegt, annað ekki. Aftur á móti leyfi ég mér að hafa hana fullnýtta og dettur ekki í hug að taka til í henni nema þegar ég þarf að setja meira dót í geymsluna. Hef aldrei skilið af hverju fólk ætti að hafa laust pláss í geymslunni, aldrei. Eitt af hlutverkum geymslu á heimilum er einmitt að gefa okkur umhugsunarfrest áður en við losum okkur við hlutina. Eða viðurkennum að þeir séu alveg ómissandi hluti af lífinu. Sem er nú sjaldnast raunin þegar dauðir hlutir eiga, í hlut.

Að henda hlutum getur verið góð skemmtun. Auðvitað hendir enginn lengur neinu í dag, við gefum, seljum eða förum með í endurvinnslu. Það er svosem stundum samhengi milli sálarlífsins og hinnar efnislegu umgjarðar. Sérstaklega ef hægt er að gera sér aur út dóti sem á sér engan tilgang nema teppa dýrmætt hillupláss í geymslunni. Og tilfinningin sem fylgir því að gefa hluti sem munu koma öðrum að gagni fæst ekki keypt. Þá er bara að gera upp við sig hvort skal losa sig við hlutina eða ekki. Meðal annars er ágætt að hanga ekki á fötum of lengi, barnafatatíska er til dæmis bara staðreynd. Og þá er um að gera að gefa eða selja föt sem ekki passa, meðan einhver vill nota.

Það eru ýmsir staðir sem taka við notuðum hlutum, Sorpa tekur við flestu, Rauði krossinn selur áfram fatnað og skó í verslunum sínum. Samhjálp er svo með sinn eigin nytjamarkað, ásamt fleirum ábyggilega sem finna má með að gúgla það.

Nýja uppáhaldið mitt er að selja dót á bland.is, þar virðist allt seljast. Bara spurning hvað maður er tilbúinn að lækka verðið mikið. Biluð og sundurskrúfuð pleisteisjon leikjatölva, gamalt gps-tæki, mjög lítið notuð safapressa, svo ég telji upp nokkra hluti sem ég hef selt þar. Miklu skemmtilegra að fá nokkra þúsundkalla aukalega, heldur en að vera með móral yfir að nota ekki eitthvað dót sem enn virkar.

Stundum er líka hægt að gera upp gamla hluti með vinnu og útsjónarsemi. Hvort sem það er að breyta flottu teppi í elegant herðaslá eða mála lúna kommóðu. Og svo eru sumir sem gera upp gamalt dót og selja áfram.

Já, það eru ýmsar aðferðir við að halda heimilinu í horfinu, fyrir þá sem það vilja.  Allavega er engin ástæða til að velta sér upp úr því að finnast heimilið ruslaralegt og ómögulegt. Bara bregðast við með því að nota, geyma eða henda. Eða svo hinn póllinn, bara sætta sig við að heimilinu er ætlað að vera svolítið draslaralegt. Það er ekkert verra eða betra heimili. Heimili er heimili, og það er bara eins og það er.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283