Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Sumir flokkar eru meira sértrúarsöfnuðir en stjórnmálaöfl

$
0
0

Nýr utanríkisráðherra segir orðspor Íslands erlendis ekki hafa beðið „umtalsverða“ hnekki vegna feluleiks nokkurra ráðamanna okkar í skattaskjólum. Ég hef séð þrjú erlend grínmyndbönd í dag sem segja aðra sögu þar sem við lítum út eins og vanhæfir og meðvirkir aular.

En utanríkisráðherra er sjálf að glíma við hneykslismál sem ég er ekki viss um að margir hafi hreinlega áttað sig á. Það er nefnilega svo að Sigmundur Davíð mælti sérstaklega með henni í þessa stöðu.

Það eru svona nokkurn veginn þau verstu meðmæli sem hægt er að fá.

Ef smánaður raðlygari í hefndarhug stingur upp á einhverjum sérstökum í mikilvægt embætti, þá er það rétta í stöðunni að hunsa hann og láta eins og viðkomandi sé ekki til. Hægt er að ímynda sér að viðkomandi sé einhver málsmetandi framsóknarmaður í Reykjavík, þeir eru nefnilega ekki heldur til.

Ný ríkisstjórn er bara ný að nafninu til. Þarna er enn fólk með tengsl við skattaskjól, þarna eru vinir og verjendur Sigmundar sem stóðu á dögunum fyrir framan sjónvarpsmyndavélar og sögðu „ekkert nýtt hafa komið fram“ og þetta mál allt vera misskilning sem búið væri að útskýra, skömmu áður en þeir hrintu honum með höfuðið á undan – niður tröppurnar á stjórnarráðinu.

Framsóknarflokkurinn er úr sér genginn og meðvirkt sveitalubba-kult. Þannig er nú bara það.

Ég veit að það þykir ekkert víða fínt að kalla hlutina sínum réttu nöfnum en þið þurfið bara að fylgjast með Bylgjunni og Ísland í dag ef þið viljið frekar hafa allt yndislegt og steríliserað.

Það eru ekki stjórnmál þegar menn eru moldríkir með krosstengsl við alla vafasömustu skuggana í viðskiptalífinu. Það er frekar stjórnun, þýðist á ensku „manipulation“, og það er ótækt að halda áfram að tala um ríkisstjórnarflokkana sem stjórnmálaflokka.

Þetta eru fyrirtæki – þeir eru reknir eins og fyrirtæki – og við sótsvartur almúginn, tilvist okkar er eingöngu til að hagnast á.

Krafturinn í okkur er síðan seldur eða einkavæddur til vina og vandamanna sem taka lán fyrir kaupunum í bönkunum okkar sem síðan er svikist um að borga til baka.

Við erum og höfum lengi verið arðrænd eins og hver annar regnskógur af Sjálfstæði og Framsókn Hf. og nú er bara svo komið að búið er að ganga of nærri okkur.

Ríkisstjórnarflokkarnir eru rúnir trausti. Forystumenn þeirra héldu framhjá okkur með erlendum peningaseðlum því krónan var bara ekki nógu gröð fyrir þá. Ef við tökum við þeim skríðandi aftur, sannfærum okkur aftur um að þeir raunverulega elski okkur, þá erum við algjörir aular – og við munum verða særð aftur.

Dugar virkilega ekki bankahrun og faldir peningar ráðamanna og 600 annarra í skattaskjólum til að við stöldrum aðeins við og hugsum með okkur:

„Getur verið að hugsanlega sé hér eitthvað stórkostlegt að?“

Og þá kemur næsta spurning – spurning sem við þurfum öll að spyrja okkur:

„Og hver á að laga það? Er það ég?“

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283