Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er Fjármálaeftirlitið að gera nægilegar kröfur?

$
0
0

Fjármálaeftirlitið gerir ráð fyrir því að fá svör frá fjármálafyrirtækjum fyrir lok vikunnar um það hvort íslensku bankarnir hafi haft milligöngu um stofnun svokallaðra aflandsreikninga. Þetta kemur fram í svari frá upplýsingafulltrúa fjármálaeftirlitsins við fyrirspurn Kvennablaðsins.

„Fyrirspurnin var almennt orðuð og krafist viðeigandi gagna ef ástæða væri til.“

Breska fjármálaeftirlitið hefur samkvæmt breskum miðlum gefið bönkum og fjármálafyrirtækjum þar í landi aðeins vikufrest til að afhenda öll gögn um viðskipti við panamísku lögfræðistofuna Mossack Fonseca.

Íslenska fjármálaeftirlitið, í almennri fyrirspurn sinni til fjármálafyrirtækja, gerði ekki sérstaka kröfu um svör um viðskipti við umrædda lögfræðistofu í Panama sem nöfn 600 Íslendinga tengjast eins og fram hefur komið. Þetta fékkst staðfest hjá Fjármálaeftirlitinu.

Athygli vekur að framganga Breska fjármálaeftirlitsins er afdráttarlaus bæði hvað varðar kröfu um tímaskil og tengsl við lögfræðistofuna Mossack Fonseca.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283