Lasca Finance Limited félag í eigu Moussaieff fjölskyldunnar er að finna í Panamaskjölunum sem lekið var frá lögfræðistofunni Mossack Fonseca. Kjarninn greinir frá þessum fréttum í dag en þar kemur ennfremur fram að fjölskyldufyrirtækið Moussaieff Jewellers Ltd. hafi árið 2005 selt 10% hlut sinn í Lasca Finance til S. Moussaieff og „Mrs.“ Moussaieff sem hafi verið hinir tveir eigendur félagsins.
Það er því ekki allskostar rétt það sem Ólafur sagði í viðtali við CNN fyrir helgi að engin tengsl við hann eða fjölskyldu hans væri að finna í Panamalekanum.
Lesið meira um málið í Kjarnanum, Morgunblaðinu og í Grapevine en þar kemur fram að ábending um mál Moussaieff fjölskyldunnar hafi komið frá forsetaframbjóðandanum Ástþóri Magnússyni.