Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar birti eftirfarandi skrif á Facebook síðu sinni:
„Heyrði í kvöldfréttunum í gær að Sturla Jónsson hefði misskilið ÁrnaPálslögin. Þar sem hann er ekki einn um misskilninginn eru eftirfarandi staðreyndirnar um það mál:
ÁrnaPálslögin frá 2010 tóku ekki rétt af nokkrum manni og enginn hefur misst húsið sitt vegna þeirra. Þau færðu skuldurum rétt til að gera kröfur á hendur lánastofnunum vegna ógildra lána, flýttu uppgjöri vegna gengislána og tryggðu að fólk sem ekki fékk lánin sín ógilt fékk sama rétt og þeir sem höfðu fengið lánin ógild.
Lögin voru sett í kjölfar dóma Hæstaréttar í júní og september 2010 og fylgdu forskrift réttarins í hvívetna. Með mikilli fjölgun dómara í Hæstarétti árið 2011 breyttist samsetning réttarins og í dómi 15. febrúar 2012 skipti rétturinn um skoðun á því hvernig haga ætti endurgreiðslum vegna gamalla afborgana. Þá mynduðu nýju dómararnir fjórir meirihluta gegn þeim dómurum sem fylgdu gamla fordæminu. Fólk sem hafði fengið endurgreiðslu á grundvelli fyrri dóma og ÁrnaPálslaganna fékk þar með ríkari rétt.
ÁrnaPálslögin opnuðu þannig möguleika fyrir alla til að gera endurkröfur á lánastofnanir og mæltu fyrir um hraða endurgreiðslu á grundvelli gildandi fordæma.
Þegar dómstólar úrskurðuðu frekari rétt, stóðu lögin ekki í vegi þess að fólk gæti notið hans. Þá tryggðu lánin þúsundum heimila, sem voru með gild erlend lán, möguleikann á að losna undan þeim.
Löggjafinn hefur enda haft þau einu afskipti af ÁrnaPálslögunum að framlengja gildistíma þeirra, einróma, vorið 2014 til að tryggja skuldurum áfram þann rétt sem lögin veittu til að gera kröfur á hendur lánastofnunum.“