Nöfn einstaklinga og fyrirtækja sem tengjast íslenskum sjávarútvegi eru í Panamagögnunum og er Reykjavik Media að vinna úr þeim gögnum. Þær fréttir verða birtar fljótlega. Reykjavík Media óskar eftir aðstoð fólks:
„Við hjá Reykjavik Media leitum eftir aðstoð fólks sem býr yfir upplýsingum um aflandsfélög fyrirtækja og einstaklinga sem tengjast íslenskum sjávarútvegi. Mossack Fonseca er eitt af þúsundum fyrirtækja um allan heim sem bjóða uppá aflandsþjónustu. Reykjavik Media vill nota tækifærið nú og hvetja þá sem hafa gögn eða upplýsingar undir höndum um aflandsfélög sem tengjast íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum að koma þeim til Reykjavik Media.“
Það er hægt að gera með ýmsu móti; öruggasta leiðin er að senda upplýsingar/gögn í gegnum Secure Drop sem finna má hér. Starfsmenn Reykjavik Media eru einnig með hushmail; johannes.kr@hushmail.com og adalsteinnk@hushmail.com
Fyrir þá sem vilja senda starfsmönnum Reykjavik Media PGP póst þá eru PGP lyklana að finna á þessari vefslóð: https://rme.is/starfsfolk/
Það er líka hægt að senda okkur bréfpóst á heimilisfangið: Reykjavik Media, Síðumúli 25, 108 Reykjavík. Einnig er hægt að hafa samband við starfsmenn Reykjavik Media; Jóhannes Kr. Kristjánsson // 777-3377 // johanneskr@rme.is og Aðalsteinn Kjartansson // 846-2325 // adalsteinnk@rme.is