
Bjarni Halldór Janusson
Ungliðahreyfing Viðreisnar var stofnuð í gærkvöldi. Formaður var kjörinn Bjarni Halldór Janusson. Í stjórn sitja auk Bjarna þau Katrín Sigríður Steingrímsdóttir, Marta Kristjana Stefánsdóttir, Sigurjón Arnórsson og Júlíus Þór Halldórsson. Ný stjórn verður kjörin í haust. Verkefni núverandi stjórnar verður að efla hreyfinguna og vekja athygli á málefnum ungs fólks og fjölga í hópnum.
Unnið hefur verið að mótun Viðreisnar og ungliðahreyfingar hennar undanfarna mánuði. Stofnfundur Viðreisnar verður í Hörpu næstkomandi þriðjudag, 24. maí, klukkan 17:00.