Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Forstjóri Útlendingastofnunar fegrar eigin árangur

$
0
0

„Veitingahlutfall í verndarmálum er á bilinu 45 – 55% á hverju ári,“ sagði Kristín Völundardóttir, forstjóri Útlendingastofnunar, í þættinum Hæpið sem sýndur var á RÚV í síðustu viku. Þátturinn vakti mikla athygli og umræðu en meginstef hans var staða hælisleitenda hér á landi. Síðari hluti umfjöllunar Hæpsins um málefni hælisleitanda verður sýndur á RÚV miðvikudaginn 25. maí klukkan 20.40.

Tölfræði forstjóra Útlendingastofnunar er merkileg fyrir þær sakir að framsetningin er hönnuð stofnunninni í hag. Sé blekkingum ekki beitt við framsetningu gagnanna er veitingahlutfall stofnunarinnar tæplega 25% miðað við tölfræði forstjórans. Það er umtalsvert minna en framsetning forstjórans í þættinum gefur til kynna. Hér er aðeins tekið mið af afgreiddum umsóknum.

Í þættinum sagði Kristín að um 354 manns hefðu komið hingað til lands í fyrra og óskað verndar. „Við afgreiddum 330 og eitthvað, ég man ekki 3 eða 4 mál. Þar af var synjað í rúmlega 100. Það var veiting í 82 og annað var Dublin eða fólk dró til baka. Veitingahlutfall í verndarmálunum er á bilinu 45 – 55% á hverju ári.“

Íslensk yfirvöld beita Dyflinnarreglugerðinni óspart til að synja hælisleitendum um efnismeðferð. Það er eitt virkasta ákvæðið í hælisleitendastefnu landsins. Með því að fjarlægja slík mál úr tölfræðinni er veitingahlutfall stofnunarinnar hækkað umtalsvert. Þá er framsetningin sérstök í ljósi þess að beiting íslenskra yfirvalda á Dyflinnarreglugerðinni hefur ítrekað verið gagnrýnd enda sé virkni ákvæðisins hér á landi misbeitt af yfirvöldum.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283