Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Hver er Sigmundur Davíð?

$
0
0

Sigmundur Davíð er kominn úr fríinu og skartar nú hálfgerðu dulargerfi – skegghýjung og leikur sér á Snapchat.

Þjóðin þurfti sannarlega frí frá Sigmundi enda er gott að komast í frí frá fólki sem getur ekki sagt satt, sem segir að svart sé hvítt, sem gerir lítið úr því sem mikilvægt er og mikið úr því sem engu skiptir. Við þurfum frí frá fólki sem leggur út af hlutunum þvert á heilbrigða skynsemi. Við þurfum frí frá fólki sem fer á svig við lög. Við þurfum frí frá fólki sem normaliserar spillingu og heldur því fram að umheimurinn sjái ekki hvað við eigum bágt. Við hefðum þurft miklu lengra frí frá Sigmundi.

Screen Shot 2016-05-23 at 10.23.52

Fríinu er lokið

Því miður er þessu fríi Sigmundar lokið því hann hyggur á öfluga endurkomu í stjórnmálin, ætlar að gefa kost á sér sem formaður flokksins og bjóða sig fram til þings í haust og hefur auðsýnilega ekkert lært í fríinu og sýnir enga auðmýkt.

Fagnaðarlætin innan úr flokknum berast um landið allt líkt og um endurkomu frelsarans sé að ræða. Vigdís Hauksdóttir flokkssystir Sigmundar tjáir sig á Facebook með orðunum:

„Gott að foringinn sé komin til starfa á ný.“

Screen Shot 2016-05-22 at 22.34.19

 

Alkunna er að upplýsingar um feril fyrrum forsætisráðherra hafa verið nokkuð á reiki og það er alls ekki ljóst hvar fyrrum forsætisráðherra hélt sig síðustu árin fram að hruni og þangað til hann kom eins og stromsveipur inn í íslensk stjórnmál árið 2009.

Kvennablaðið biður lesendur sem eitthvað vita um ferðir Sigmundar Davíðs árin 2005-2009 að deila þeim með okkur í þeirri von að okkur takist að gefa glögga mynd af tímalínu sem kann að reynast mikilvæg þegar meta þarf trúverðugleika frekari skýringa hans á málum Wintris Inc., endurkomu hans í stjórnmál nú og fleira skemmtilegt sem eflaust kemur upp á næstu vikum.

Sigmundur Davíð hefur eins og alþjóð veit verið sinn eigin söguskoðari, veitt miðlum sem eru honum þóknanlegir viðtöl, neitað að tala við Ríkisútvarpið og birt ítarlegt viðtal við sjálfan sig – sem hann reyndar tók sjálfur. Þar að auki hefur hann að eigin viti hreinsað sig af áburði um misferli í Kringum Wintris Inc. með því að birta valin ljósrit eða ‘upplýsingapakka’ máli sínu til skýringar sem staðfesta að skattaskil hans eru ekki í samræmi við lög.  Við vitum jafnframt að hann hefur ekki birt skattaskýrslur sínar né Önnu Sigurlaugar, ekki birt ársreikninga Wintris Inc, né greint frá færslum inn og út úr fyrirtækinu. ‘Upplýsingapakkinn’ er því fyrst og fremst hannaður til að villa um fyrir almenningi með því að þvæla málinu og gefa ásýnd heiðarleika.“

Fortíðin er furðuverk

Margir eru forvitnir þegar kemur að  raunverulegri sögu fortíðar Sigmundar Davíðs og leitin er þegar hafin. Í Facebook færslu setti Jón Benediktsson fram þrjár mögulegar tímalínur:

„Týndu ár SDG (2005-2009) hafa heillað mig lengi. Samkvæmt {2} var hann í skóla í sjö og hálft ár á þessum fjórum árum. Í gær fengum við sjaldséðan mola frá Sigmundi um þessi ár.

Til upprifjunar:

Útskrifast frá HÍ 26. febrúar 2005. {1}

„Ég lauk námi frá Viðskipta- og hagfræðideild HÍ með fjölmiðlafræði sem aukagrein [2/2005]. Að því loknu stundaði ég nám í hagfræði og hagþróun Austur-Evrópu við Plekhanov í Moskvu í hálft ár [8/2005] og var tvö ár í skiptinámi við stjórnmálafræðideild Kaupmannahafnarháskóla [8/2007]…“ {2}

„Þegar hún fékk þetta fjármagn til ráðstöfunar árið 2007 höfðum við búið í Bretlandi um nokkurra ára skeið…“ {3}

Í tímalínu {2} flytur hann fyrst til Bretlands í ágúst 2007, en í tímalínu {3} hefur hann búið þar í nokkur (2-4?) ár árið 2007. Miðað við gæði pöbbanna í þessum þremur löndum myndi ég skjóta á að {3} væri sannleikurinn, en þetta undirstrikar vandamálið með lygar – það verður erfiðara að segja satt seinna meir.

Ég veit að það skemmir ímynd manns sem er með tólf aðstoðarmenn og kaus að rísa upp pólitískt á páskadag en það er kannski pláss fyrir þrettánda postulann sem hefur það hlutverk að muna eftir öllu fortíðarbullinu og laga plotholes.“

{1} http://www.hi.is/adalvefur/brautskraning_26_februar_2005
{2} http://sigmundurdavid.is/vegna-umfjollunar-fjolmi%C3%B0la-…/
{3} http://sigmundurdavid.is/hvad-snyr-upp-og-nidur/

Upplýsingum á Wikipediu ber saman um að Sigmundur hafi lokið prófi frá Háskóla Íslands 1995 en samkvæmt frönsku útgáfunni lauk hann einnig doktorsprófi frá Oxford. Ekki kemur fram hvaða ár það var, en náms í Moskvu og Kaupmannahöfn er getið.

Þar er námið við HÍ reyndar sagt vera í hagfræði og stjórnmálafræði (les sciences économiques et politiques) en hið rétta er að hann lauk prófi í viðskiptafræði með fjölmiðlafræði sem aukagrein.

Atli Jasonarson hefur einnig spreytt sig á því að koma ævi Sigmundar heim og saman og setti fram á Facebook eftirfarandi tímalínu:

Screen Shot 2016-04-02 at 21.45.27

Einnig setti Sigmundur sjálfur fram merkilega vísbendingu um veru sína í Moskvu „seint á síðustu öld“ eins og hann orðar það:

12920969_10153662153278978_598673214_n

Hér eru nokkrar lykilspurningar:

Hvenær bjó Sigmundur á Englandi og hvar?
Hvenær bjó Sigmundur í Kaupmannahöfn og hvar?
Hvenær bjó Sigmundur í Moskvu og hvar?
Hvenær flutti Sigmundur til Íslands?
Hvenær fluttist Sigmundur að Hrafnabjörgum III?

Í hvaða háskólum hefur Sigmundur verið skráður nemandi og hvaða tímabil?

Sendið okkur endilega allar upplýsingar og ábendingar sem þið kunnið að luma á – við hljótum að geta komið þessu heim og saman ef við leggjumst á eitt! Ævisögum forsætisráðherra og fyrrum forsætisráðherra er mikilvægt að halda til haga. Og samkvæmisleikurinn, Hver er Sigmundur Davíð, er bara rétt að byrja!

Upplýsingum má koma á framfæri í athugasemdakerfinu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283