Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Kvennaíþróttum er kerfisbundið ýtt til hliðar og afneitun lagar vandann ekki

$
0
0

„ Einu sinni vann lið mitt Reykjavík Open, við fengum 200.000 krónur í verðlaunafé sem við sáum ekki krónu af þar sem félagið notaði það fyrir karlaliðið,“ skrifar Hafdís Inga Hinriksdóttir, verkefnastjóri og handboltakona, á Facebook. Hafdís fjallar um kerfisbundið kynjamisrétti í íþróttum þar sem skilaboðin til kvenna eru þau að afrek þeirra séu minna virði en karla. Hún týnir til nokkur nýleg dæmi og eigin reynslu af slíku.

Kvenréttindi í íþróttum hafa verið talsvert til umfjöllunar undanfarið í kjölfar fremur augljósra dæma um hve miklu meira íþróttaiðkun karla er hampað af samfélaginu og fjölmiðlum. Þannig vakti auglýsing íþróttafréttadeildar Stöðvar 2 þar sem tólf fréttamenn birtust, allir sem einn karlmenn og það þrátt fyrir að hjá Stöð 2 starfi Helena Ólafsdóttir afrekskona og þjálafari. Helena stýrir markaþætti um Pepsi-deild kvenna á Stöð 2 Sport. 

Þá var RÚV gagnrýnt fyrir að gera æfingaleik karlalandsliðsins í fótbolta hærra undir höfði en afar mikilvægum leik kvennalandsliðsin í undankeppni EM 2017. Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri RÚV, sagði hliðrunina hafa verið vegna þáttarins Baráttan um Bessastaði, kappræðum frambjóðenda.

Þó alltaf virðist mega finna svar fyrir því hvers vegna kvennaíþróttir þurfi að víkja en karla ekki verður ekki hjá því litið að íþróttaafrek kvenna virðast ekki njóta sömu virðingar og karla. Viðbrögðin við árangri landsliðs karla í knattspyrnu, sem keppa nú á EM í Frakklandi, bera þess augljós merki. „Svo í dag þegar ég las fréttirnar um það að RÚV telji leik kvennalandsliðsins í fótbolta ekki nægjanlega áhugaverðan til að vera sýndan á aðalstöð þeirra þá endanlega varð mér misboðið. Það þykir víst ekkert merkilegt að þær geti tryggt sig inn á stórmót. Það var nú ekkert lítið umfangið þegar karlaliðið stóð í sömu sporum fyrir ekki svo löngu!!“ skrifar Herdís.

„Ég var í U-20 kvenna sem var fyrst allra íslenskra landsliða í hópíþrótt til að komast í lokakeppni HM. Mótið var í Kína en við þurftum að berjast fyrir því að fá að fara á mótið þar sem að sérsambandinu þótti þetta of dýrt, líklegt að þeir hefðu íhugað það að sleppa því að senda karlaliðið!!“ skrifar Hafdís. „Við mamma söfnuðum einu sinni öllum fjölmiðlaumfjöllunum um mína íþróttagrein yfir heilt tímabil til að sýna fram á mismununina, raunveruleikinn sem blasti við í lok tímabilsins var sláandi, vægast sagt. Við fórum með gögnin til fjölmiðla en þeim var slétt sama.“

Hafdís segir frá því að hún hafi farið með son sinn á Sjómannadagshátíð við höfn Hafnarfjarðarbæjar og séð hversdagsrembuna þar. „Árlega er keppt í kappróðri bæði í karla og kvenna. Í gær var engin breyting þar á, nema hvað að sigurliðið kvenna keppti einnig við karlalið og stóð sig fáránlega vel. Svo kom að verðlaunaafhendingu og ég trúði varla mínum eigin augum. Árið 2016 veitti Hafnarfjarðarbær sigurvegara karlaliðsins frekar stóran og veglegan bikar fyrir sín afrek. En kvennaliðið sem bar sigur úr bítum fékk eitthvað sem líktist meira áldós en bikar. Er þetta ekki orðið dálítið þreytt?“

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283