Auglýsing
„Á næstu dögum munum við hætta með Barnaland, þ.e. gömlu heimasvæðin sem hugsuð voru fyrir barnamyndir og þess háttar,“ segir í tilkynningu frá Bland.is til notenda vefsins í dag. Notendur Barnalands, sem nú er hluti af Bland.is, eru hvattir til að taka afrit af gögnum sínum en þeim verður eitt eftir 90 daga frá og með deginum í dag. Bland.is verður áfram í fullum blóma og engin merki eru þess að sá vettvangur loki.
Í tilkynningunni segir að engum gögnum hafi verið eytt og að hægt sé að ná í afrit næstu 90 daga með því að smella hér.
Auglýsing