Miðvikudagskvöldið 15. júní kl. 20 verður fræðsluganga í Grasagarði Reykjavíkur.
Í steinhæðum Grasagarðsins vaxa háfjallaplöntur frá öllum heimshornum. Í göngunni verða steinhæðarplönturnar skoðaðar auk þess sem farið verður yfir skipulag og uppbyggingu steinhæða.
Jóhanna Þormar garðyrkjufræðingur leiðir gönguna sem hefst við aðalinngang Grasagarðsins við Laugatungu.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir!
Myndin sýnir Himalajablásól (Meconopsis aculeata) af draumsóleyjaætt. Þessi fínlega planta á heimkynni í Vestur-Himalajafjöllum og deyr venjulega eftir blómgun.