„Bandaríkin eru eina landið í heiminum sem slakar á skotvopnalöggjöfinni í kjölfar blóðbaða,“ segir Ian Overton, rithöfundur og blaðamaður, í samtali við Kvennablaðið í kjölfar skotárásarinnar á skemmtistaðnum Pulse í Orlando, Flórída.
Overton ritaði bókina Hættir Byssunnar – blóðugt ferðalag um heim skotvopna. Bókin kom fyrst út í Evrópu árið 2015 og þá undir nafninu Gun Baby Gun. Bókin rannsakar skotvopnaiðnaðinn og byssumenningu um heim allan. Overton ferðaðist þannig um allan heim en í bókinni er meðal annars að finna kafla um Ísland sem ritaður er skömmu eftir að Sævar Rafn Jónsson var skotinn til bana af lögreglu.
Overton segir Bandaríkjamenn ítrekað gerast seka um að slaka á eftirliti og vopnalöggjöf í kjölfar skotvopna þrátt fyrir fyrirliggjandi og sannfærandi gögn um að slíkt dragi beinlínis úr öryggi borgaranna. Hann segir erfitt fyrir fólk á Íslandi sem og Bretlandi, þaðan sem hann er, að skilja rótgróinn byssukúltúr Bandaríkjanna.
„Það er sorglegt að horfa upp á menningu ofsahræðslu og vænissýki Bandaríkjamanna í bland við ást þeirra á skotvopnum. Afleiðing þessarar banvænu blöndu er samfélag þar sem yfir 300 milljón skotvopn eru í umferð og í höndum almennra borgara. Átakanlegast er að þótt vissulega sé fólk sem á skotvopn til veiða og frístunda er það einfaldlega svo að flest vopn í höndum almennra borgara eru hugsuð til sjálfsvarnar,“ segir Overton.
Omar Mateen myrti fimtmíu manns og særði fimmtíu í viðbót á skemmtistaðnum Pulse í Orlando síðastliðinn sunnudag. Mateen kom til rannsóknar hjá lögreglu árið 2013 og 2014 vegna gruns um hryðjuverkatengsl. Faðir Mateen sagði við MSNBC skömmu eftir árásina að hann hafi sýnt mikla reiði í kjölfar þess að tveir karlmenn kysstust á almannafæri í hans augsýn. Skotárásin er sú versta í sögu Bandaríkjanna. Mateen var 29 ára bandarískur ríkisborgari. Fyrrverandi eiginkona Mateen sagði við LA Times að Mateen hafi verið vanstilltur og beitt hana ofbeldi. Faðir hans hefur í samtölum við fjölmiðla sagt son sinn tala opinskátt um andúð sína á hinsegin fólki og haft er eftir samstarfsfólki hans að Mateen hafi verið rasisti og nokkuð stoltur af. Þeir sem til hans þekktu lýsa honum sem reiðum og erfiðum í samskiptum.
Sjá einnig: Hver var Omar Mateen?
Í bók Overton er fjallað um Ísland einskonar fyrirmyndasamfélag þegar kemur að skotvopnaeign. Þannig er umtalsvert magn af skotvopnum í almennir eigu á hér á landi en ofbeldi þar sem skotvopnum er beitt afar lágt. Rúmlega 72 þúsund skotvopn eru löglega skráð á Íslandi samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra. Þannig er fjallað töluvert um sýn Íslendinga á skotvopn og dregin er upp mynd af friðelskandi samfélagi sem sér skotvopn sem eitthvað sem alls ekki er beitt gegn fólki. Bandaríkin eru aftur á móti dæmi um þveröfugt. Mikla skotvopnaeign, gríðarlegt ofbeldi og stækan skotvopnakúltúr. Samfélag sem er helsjúkt af lotningu gagnvart skotvopnum og sér þau sem táknmynd karlmennsku og frelsis.
„Þrátt fyrir að byssur séu allt í kring og út um allt í Bandaríkjunum þá sýna gögnin aftur að skotvopn í höndum almennings eru ekki til þess að auka öryggi almennra borgara gegn vopnuðum brjálæðingum með skotvopn. Agnarsmátt hlutfall skotárása hefur endað fyrr vegna þess að almennur borgari með skotvopn varðist. Þetta er staðreynd þrátt fyrir að bandarískur almenningur og samfélag sé vopnað umfram það sem eðlilegt er,“ segir Overton í tilraun til að benda á fáránleika þeirrar hugmyndar að ein leið til að fækka blóðböðum og mannfalli sé ekki að setja hömlur á skotvopnaeign heldur þvert á móti að vopna almenning en frekar.
Sjá einnig: „Árásin er hatursglæpur sem beinist gegn hinsegin fólki um allan heim“
„Það er þyngra en tárum taki að líklega munu Bandaríkin ekkert læra af þessu atviki. Líklegt er að viðbrögðin verði eins og áður – að almenningur finni sig knúinn til að vopnast enn meira. Obama hefur eins og áður kallað eftir því að hafin verði einhversskonar tilraun til skynsamrar umræðu um leiðir til að sporna við ofbeldi sem er bein afleiðing af greiðu aðgengi að skotvopnum. Ég óttast að honum verði því miður ekki að ósk sinni enda erfitt að keppa við skrækina í NRA, National Rifle Association, með sinn launaða útsendaraher. NRA í bland við vaxandi hræðslu, þráhyggju og hatur Bandaríkjamanna á íslam vinnur einfaldlega gegn skynseminni hér,“ segir Overton.
„Bandaríkin og íbúar telja sig í hættu og raunar í varnarstríði gegn hryðjuverkum. Staðreyndin er samt að hættan er að mestu leyti komin til innan frá og vegna rótgróinna ranghugmynda um réttinn til að vopnast sem tryggður er í stjórnarskrá Bandaríkjanna.“