Tveir menn voru handteknir í gærmorgun í tengslum við rannsókn setts saksóknara á morði Guðmundar Einarssonar í Guðmundar- og Geirfinnsmálinu samkvæmt forsíðufrétt Morgunblaðsins í dag. Blaðið segist hafa áræðanlegar heimildir fyrir því að settur saksóknari málsins hafi undir höndum nýjan vitnisburð sem gaf tilefni til að handtaka tvo menn.
„Vegna rannsóknarhagsmuna voru mennirnir handteknir og yfirheyrðir hvor í sínu lagi, til að koma í veg fyrir að þeir gætu samhæft vitnisburði sína. Mennirnir voru látnir lausir að yfirheyrslum loknum. Þeir hafa báðir komið við sögu lögreglu áður og afplánað refsidóma,“ segir í frétt Morgunblaðsins.
Tilkynnt var um hvarf Guðmundar Einarssonar hinn 29. janúar árið 1974. Síðast sást til hans eftir dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði tveimur dögum áður. Lögreglan lýsti eftir Guðmundi í fjölmiðlum og hóf leit ásamt Slysavarnafélagi Íslands. Leit skilaði engum árangri. Síðast sást til Geirfinns hinn 19. nóvember árið 1974.