Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Trúarlífið er gert upp 1. desember

$
0
0

Bjarni Jónsson framkvæmdastjóri Siðmenntar skrifar:

Trúarlíf þjóðarinnar hefur breyst hratt undanfarin ár. Staða Þjóðkirkjunnar er gerbreytt frá því sem áður var, við lifum í fjölbreyttara og veraldlegra samfélagi en nokkru sinni. Sama þróun hefur átt sér stað í flestum Evrópulöndum, sem sum hver eru orðin að meirihluta trúlaus s.s. Svíþjóð og Holland, og tök Kaþólsku kirkjunnar hafa veikst verulega í mörgum Suður- og Mið-Ameríkuríkjum og meira að segja á Írlandi.

Á Íslandi eru um 70% landsmanna enn skráð í Þjóðkirkjuna, en trúarsannfæringin virðist fara hratt dvínandi. Innan við helmingur kirkjufélaga kveðst trúa því að guð sé til, og meirihluti landsmanna virðist hafa veraldlega lífsskoðun þar sem trú á æðri máttarvöld eða iðkun trúarbragða gegnir engu hlutverki.

Þróunin kemur skýrast fram hjá yngstu kynslóðinni. Íslendingar á aldrinum 18-25 ára eru langflestir trúlausir. 83% af hópnum telur sig ekki trúaða eða óviss og segja langflest að þau eigi enga eða takmarkaða samleið með Þjóðkirkjunni.

telur-thu-thig-truadan-25 telur-thu-thig-truadan-allir

 

 

Fermingar eru orðnar fjölbreyttar

Það er liðin tíð að flestöll börn fermist. Borgaralegum fermingum fjölgar hratt og voru 339 ungmenni fermd borgaralega á þessu ári. Árið 2017 eru 362 þegar skráð.  Sístækkandi er einnig sá hópur sem velur að fermast alls ekki.

screen-shot-2016-11-26-at-10-59-31

 Borgaralegum fermingum hjá Siðmennt fjölgar jafnt og þétt

Fermingabörnin taka þátt í 12 vikna námskeiði þar sem m.a. er fjallað um heimspeki, gagnrýna hugsun, siðfræði, mismunandi lífsviðhorf, frelsi, ábyrgð, fordóma, samskipti kynjanna og skaðsemi vímuefna svo eitthvað sé nefnt. Ekki er spurt um lífsskoðanir foreldra barnanna heldur er hver einstaklingur þátttakandi á sínum forsendum.

Eftirspurn eftir veraldlegum athöfnum fer vaxandi

Frá árinu 2008 hefur Siðmennt boðið upp á veraldlegar athafnir s.s. nafngjafir, giftingar og útfarir. Þörfin fyrir þessa þjónustu virðist vera talsvert mikil. Í ár hafa þegar verið framkvæmdar 260 athafnir, sem er meira en 30% aukning frá fyrra ári. Giftingar eru orðnar 168 og 71 nafngjafir eru skráðar.

Mikil fjölgun félagsmanna

Þann 3. maí 2013 hlaut Siðmennt skráningu sem fyrsta veraldlega lífsskoðunarfélagið á Íslandi eftir að lögum hafði verið breytt. Þar með var hægt að skrá sig hjá Þjóðskrá og félagið fær greidda ákveðna upphæð með hverjum félagsmanni.

Þegar skráningin hlaut gildi voru 300 manns á félagaskrá en í dag eru yfir 1.700 manns sem hafa skráð sig í Siðmennt hjá Þjóðskrá, á skra.is. Á þessu ári hefur fjölgunin verið um 18%.

Framlög skattgreiðenda til trúar- og lífsskoðunarfélaga eru í formi „sóknargjalda“, sem er nefskattur að upphæð 10.776 kr. Skattinum er dreift á skráð félög í réttu hlutfalli við fjölda skráðra félaga, en skattur þeirra sem standa utan félaga rennur beint í ríkissjóð. Rétt er að minna á að sá skattur rennur ekki til Háskóla Íslands, né í neinn annan tiltekinn málstað eða málaflokk.

Sá stuðningur sem félagið fær frá þeim sem skrá sig í Siðmennt hjá Þjóðskrá er mikilvægur. Því er áríðandi að skrá sig í félagið fyrir 1. desember því sú dagssetning er viðmiðið fyrir þær greiðslur sem félagið fær.

 

 

 

 

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283