Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Konukvöld á Gló á fimmtudaginn 1. des! Frítt inn!

$
0
0

Það má búast við dúndrandi stuði á Gló á fimmutdaginn kemur þann 1. desember, klukkan 19:00. Þar munu vinkonurnar Solla Eiríks, Vala Matt og Ásdís grasalæknir halda fjörinu uppi þetta stórskemmtilega kvöld. Þær vinkonurnar munu meðal annars kynna vítamín fyrir veturinn, gefa uppskriftir af hollum og góðum jólabakstri, þær munu draga hvorki meira né minna en 20 vinninga í happdrætti og almennt vera í miklu stuði, tilbúnar að veita ykkur öllum hjálparhönd. Það er FRÍTT inn!

Sólveig Eiríksdóttir

Sólveig Eiríksdóttir

Í fréttatilkynningu segir:

„Komið og njótið léttra veitinga og verslum jólagjafirnar snemma þetta árið, við verðum með 10% afslátt í verslun okkar og heilan helling af kynningum og smakki. Við lofum heljarinnar innblæstri fyrir bæði jólagjafir og gómsæta aðventu. Fyrstu 100 gestirnir fá vel útilátinn gjafapoka frá Gló, svo ekki vera hrædd við að mæta tímanlega, við hlökkum til að sjá ykkur og eyða skemmtilegri kvöldstund saman.

– Kl 19.00 Kaldpressaður heilsu fordrykkur og gjafapokar
– 19:30 – 20:30 Okkar eigin glóandi Solla, Ásdís Grasalæknir og Vala Matt kynna okkur fyrir vítamínum; eins og t.d. hvaða vitamin við eigum að taka til að fara flott inn í jólin og veturinn. Einnig mun Solla sýna uppskrift af góðum og hollum jólasmákökum.
– Yfir allt kvöldið munum við draga 20 happdrættisvinninga frá m.a. Dr. Hauschka gjafakassar og jóladagatal, Teatox, Eco by Sonya, Kiki Health, Pukka bætiefni, Feel Iceland, Pacifica, Wild Nutrition, Lifefactory
– 20:30 – 21:00 Tími til að skoða búðina, kíkja á kynningar, smakka alskonar ljúfmeti og kanna bestu tilboðin

Það verður 10 % afsláttur af öllu í verslun okkar og það kostar ekkert inn ♥ Svo ekkert ætti að stoppa ykkur, við hlökkum þvi til að sjá ykkur ♥ ♥


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283