Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Vertu besta vinkona þín

$
0
0

Ég fæ oft alls konar hugmyndir misstórar og skemmtilegar (reyndar oftast skemmtilegar finnst mér) eða allt frá því hvernig ég eigi nú að lita á mér hárið og alveg út í það hvernig ég eigi að bjarga heiminum. Þar sem það er nú svolítið yfirdrifið að ætla að bjarga heiminum bara sisona þá er það samt þannig að við getum öll lagt eitthvað af mörkum til að gera heiminn fallegri og friðsælli.

Allt byrjar þetta á manni sjálfum. Ég fór að vinna mikið með í sjálfri mér fyrir þremur árum því ég vildi finna frið innra með mér. Ég hef verið leitandi og notað ýmsar leiðir til sjálfsskoðunar til þess að fá að upplifa þennan eftirsótta frið og hugarró. Ég er búin að prófa hugleiðslu, núvitundaræfingar, jóga, dans, líkamsrækt, náttúruferðir og ýmislegt annað.

Eftir að ég fór að huga að andlegu og líkamlegu heilsunni hef ég fundið þennan frið sem ég vissi nú bara ekki að væri til. Þegar mér líður vel í eigin skinni, fer vel með mig og sýni sjálfri mér kærleik þá fylgir því ósjálfrátt að ég verð kærleiksrík við fólkið í kringum mig og mér fer að þykja vænna um annað fólk. Mér fer líka að þykja vænna um sjálfa mig.
Það er rosa gott að þykja vænt um sig. Kannski þykir fólki almennt vænt um sig en sjálfsvæntumþykja var alveg uppgötvun fyrir mig. Mjög góð uppgötvun.

Einhvern tímann á þessari leið heyrði ég vin minn segja hátt og skýrt; „Ég ætla að vera vinkona mín!“ og ég greip það strax. Ég ákvað að herma eftir honum. Ég fór að hugsa hvað ég hef oft gert mér lífið leitt með því að vera rosalega gagnrýnin á sjálfa mig og berja mig niður fyrir minnstu „mistök“.

Ég ákvað að breyta þessu. Ég ákvað að sýna mér meira umburðarlyndi, ást og kærleik og styðja mig í því sem ég er að gera og þegar eitthvað misferst, að bara leyfa mér að vera Sigrún sem er ekki fullkomin en samt frábær og halda svo áfram að gera mitt besta til að vera besta útgáfan af sjálfri mér.

Ég er líka byrjuð að hrósa mér þegar ég stend mig vel og jafnvel gefa mér verðlaun til dæmis ef að mér gengur vel í prófi, skúra gólfin (sem ég reyndar verðlauna mig alltaf einhvern veginn fyrir, þar sem ég fæ alltaf skúringakvíðann) eða bara fyrir það að ég sé búin að vera svo frábær.

Verðlaunin eru til dæmis að bjóða mér út að borða, fá mér gott kaffi eða fara í fótabað, bara eitthvað svona svolítið sætt og skemmtilegt.

Áður fyrr þá var ég rosalega háð því að vera alltaf í félagsskap annarra, ég var alltaf í símanum eða að hanga með einhverjum og ef að mig langaði til að sjá einhverja mynd sem engan annan langaði til að sjá þá fór ég ekki í bíó til að sjá hana. Í dag þar sem ég er nú orðin svo góð vinkona mín þá finnst mér frábært að fara með sjálfri mér í bíó, út að borða, á kaffihús eða í fjöruferð.

Mér finnst ég bara mjög skemmtileg vinkona, loksins.

Gefðu þér séns og vertu vinkona þín.

 

Ljósmynd eftir Steve Hodgson CC


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283