Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Að dreyma hús

$
0
0

Draumalandið býður upp á mikla möguleika til skilnings á eigin sjálfi og þeim þáttum tilverunnar sem við hrærumst í dags daglega. Til þess að geta nýtt sér þessa möguleika þarf ekki bara árvekni á draumana sjálfa heldur líka táknin sem draumurinn notar til að koma skilaboðum sínum á framfæri. Mikilvægt fyrsta skref er að fá sér netta skrifblokk og blýant eða bara Ipoddinn til að skrá niður stikkorð úr draumum næturinnar til upprifjunar þegar færi gefst daginn eftir eða næstu daga. Eitt orð getur rifjað upp heilan draum sem annars myndi gleymast og opnað þér nýja sýn á það viðfangsefni sem þú ert að glíma við.

„Draumur um hús“.

Tákn draumsins sem birtast þér í svefni eru margræð í viðleitni sinni að hlutgera raunveruleika draumsins. Þar eru merki fortíðar, nútíðar og framtíðar myndskreytt með hlutgervingum hugsana, tilfinninga og kennda þess sem gerist í draumnum. Eitt þessara tákna er hús eða vistarvera og er það mikilvægt tákn fyrir þig að skoða því það speglar þig, vitund þína, sjálf og tilfinningar. Í draumahúsið leitar þú svara við mörgum mikilvægum spurningum þíns eigin lífs og tilveru.
„Mér fannst ég vera í húsi“. Hversu oft hefur þú sagt eitthvað svipað þegar þú segir vini þínum draum þinn og síðan ekki söguna meir, nema hvað þig dreymir áfram drauma um hús. Í spegli draumsins er húsið þú, hvort sem það er hæð, einbýli, blokk eða einhver önnur gerð af húsi, það er alltaf tákn fyrir þig. Tákn um heilsu, líðan, lausnir, hugmyndir eða hvaðeina sem er á dagskrá þá nóttina. Þetta getur verið einn stakur draumur sem leysir gátu vökunnar eða raðdraumar sem knýja á uns úr leysist.
Skoðaðu hús draumsins út frá þér: ris-höfuð, efri hæð-brjóstsvæði, miðhæð og svo framvegis.

Draumar lesenda

Ég skrifaði pistla um drauma í Morgunblaðið um síðustu aldamót sem nefndust „Draumstafir“. Þar fjallaði ég vítt og breitt um drauma og réð drauma lesenda. Til gamans birti ég hér draum „Möggu“ sem birtist í pistlinum 18. nóvember árið 2000, ásamt ráðningu minni.

„Möggu“ dreymdi

Ég var á erlendri grund og innan um fleira fólk sem ég þekkti ekki. Við vorum úti við á verönd eða svölum. Það var ekki afgerandi veður en þó ekki vetur. Þar sem ég stend kemur þyrla og fer hjá og flýgur frekar lágt, hún er mjög |jós að lit eða hvít. Engin auðkenni eru á henni og hún virkar eilítið eins og uppblásin, hún er ekki aflöng, form hennar er svipað á alla kanta. Þá sé ég að strax á eftir henni kemur þota, ekki mjög stór og er hvít í grunninn og öll skreytt með íslenska fánanum. Hún var mjög falleg að sjá og blái liturinn í fánanum var afgerandi og kom sérlega vel út á hvítum grunnfletinum. Mér varð ljóst að þessi flugvél yrði að nauðlenda fyrir framan okkur og þyrlan var að leiðbeina henni hvar best væri að lenda.
Við fylgdumst með af athygli hvernig til tækist. Í fyrstu virtist lendingin ætla að takast vel en eftir að vélin lenti tók hún sveigju og valt síðan á hliðina, svo á toppinn og aftur á hliðina og að lokum kom hún upp á hjólin aftur. Ekki vildi betur til en svo að hún fór aftur akkúrat sömu leið, í beygju, á hliðina, á toppinn, á hina hliðina og svo á hjólin aftur. Nú héldum við að þetta væri loksins afstaðið, en þá tók hún að renna áfram og við skynjuðum að flugstjórinn gat ekki stöðvað hana því hemlarnir virtust ekki virka. Þá virtist flugstjórinn taka þá ákvörðun að beina flugvélinni að bílflaki sem liggur í sandinum (svæðið var fjörusandur) og stöðva hana þannig. Flugvélin lenti á bílflakinu og stöðvaðist í flæðarmálinu. Draumurinn endar þannig að mér fannst að farþegarnir rísi úr sætum sínum og allt hafi endað vel.

Ráðning

Það ætti að vera lítill vandi fyrir nútímamanninn að taka draum eins og þinn og velta honum upp til skýringar því öll táknin eru kunnugleg og draumurinn nokkuð Ijós.
Í draumfræðum hafa flugvélar speglað sálræna þætti og litir ákveðna eðlisþætti, eins og hvítt er merki um eitthvað hreint eða nýtt. Önnur tákn eins og að standa á svölum eða verönd gefa í skyn að draumurinn snúist ekki um þig sem persónu, heldur um það sem þú sérð af svölum þín sjálfrar. Íslenski fáninn segir svo að það sé íslenskt þjóðfélag sem eigi í hlut og frá og með þessum vetri verði tvær kollsteypur í þjóðfélaginu (væntanlega efnahagslífinu) með tiIheyrandi röskun á högum fólks. Þessum kollsteypum fylgi svo mikið skrið (tilfærslur fjármuna) sem verði ekki stöðvað nema með gömlum og gildum úrræðum (bílflakið) eða handaflinu svonefnda.

Draumaráðningar

Ef þú vilt fá draum þinn ráðinn er þér frjálst að senda inn drauminn ásamt fullu nafni, netfangi og dulnafni á: draumar@kvennabladid.is


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283