Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Barnaheill berst fyrir gjaldfrjálsum námsgögnum

$
0
0

Barnaheill – Save the Children á Íslandi leita til almennings eftir undirskriftum til að þrýsta á um að réttindi barna til gjaldfrjálsrar grunnmenntunar verði virt. Samtökin hafa á síðastliðnu ári sent yfirvöldum tvær áskoranir. Öll börn eiga rétt á grunnmenntun án endurgjalds samkvæmt 28. grein barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland hefur lögfest. Í 2. grein er jafnframt kveðið á um að ekki megi mismuna börnum sökum stöðu þeirra eða foreldra þeirra, svo sem vegna efnahags.

„Tökum höndum saman og stöndum vörð um réttindi íslenskra barna til náms án gjaldtöku! Krefjumst þess að innkaupalistar skóla verði aflagðir og að öll börn standi jafnt að vígi þegar kemur að grunnréttindum þeirra til menntunar,“ segir í yfirskrift undirskritastöfnunarinnar sem má finna hér.

Auglýsing

Skólinn er hornsteinn jafnræðis í samfélaginu og þess vegna er afar mikilvægt að tryggja að börnum sé ekki mismunað. Á liðnu ári hafa Barnaheill sent frá sér tvær áskoranir til ríkis og sveitarfélaga um að tryggja öllum börnum þennan rétt sinn. Samtökin hvöttu þingmenn til að beita sér fyrir lagabreytingum sem tækju af öll tvímæli um að gjaldtaka væri óheimil og hvöttu sveitarfélög til að setja skýrar reglur þar að lútandi:

  • Barnaheill hvetja þingheim til að gera breytingar á 31. gr. grunnskólalaga, þannig að tekið verði fyrir alla gjaldtöku á námsgögnum nemenda, þ.m.t. á ritföngum og pappír sem samtökin telja að verði að líta á sem námsgögn, því án þess geta nemendur ekki stundað nám sitt.
  • Barnaheill hvetja stjórnvöld, bæði ríki og sveitarfélög, að setja skýrar reglur um að óheimilt sé að krefja foreldra um innkaup á gögnum, greiðslu fyrir gögn sem nota á vegna skólagöngu barnanna eða fyrir aðra starfsemi á vegum skóla.
  • Barnaheill hvetja alla grunnskóla til að finna leiðir til að uppfylla markmið aðalnámskrár um menntun barnanna, án þess að krefja foreldra um greiðslu á hluta námsgagna eða starfsemi á vegum skóla.

Auglýsing

Barnaheill segir gjaldtökuna fela í sér mismunun fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Í fyrra skoraði Velferðarvaktin á sveitarfélög að leggja af kostnaðarþátttöku foreldra vegna ritfanga grunnskólabarna. Í tilvikum þar sem slíkt er ekki mögulegt hvetur Velferðarvaktin til þess að slíkum kostnaðarþátt foreldra sé í það minnsta haldið í lágmarki. „Velferðarvaktin telur að kostnaðarþátttaka foreldra, vegna ritfanga og annarra gagna vegna skólagöngu barna, upp á tugi þúsunda króna samrýmist hvorki anda Barnasáttmálans né grunnskólalaganna. Af þeim sökum hvetur Velferðarvaktin öll sveitarfélög landsins til að leggja slíka kostnaðarþátttöku af eða haldi henni í algjöru lágmarki.“ segir í bréfi Velferðarvaktarinnar til sveitarfélaga.

Velferðarvaktin var stofnuð að frumkvæði stjórnvalda snemma árs 2009 til að fylgjast með afleiðingum efnahagshrunsins á heimilin í landinu. Hún er óháður greiningar- og álitsgjafi sem leggur fram tillögur til stjórnvalda og hagsmunasamtaka og fylgir þeim eftir. Að velferðarvaktinni standa samtök, aðilar vinnumarkaðarins, ráðuneyti, ríkisstofnanir og sveitarfélögin. Velferðarvaktinni er falið samkvæmt skipunarbréfi að „…huga að velferð og afkomu efnalítilla barnafjölskyldna, sérstaklega einstæðra foreldra og barna þeirra og afla upplýsinga um aðstæður þeirra sem búa við sára fátækt svo draga megi úr henni“.

 

Í bréfi Velferðavaktarinnar til sveitarfélaga og skóla segir: „Velferðarvaktin hefur í gegnum tíðina komið opinberlega á framfæri ábendingum um að sveitarstjórnir leggi áherslu á að halda kostnaði heimila vegna skólasóknar barna í lágmarki í þeim tilgangi að koma til móts við þá sem standa höllum fæti í þjóðfélaginu. Þannig komi bágur efnahagur heimilisins síður niður á námi og lífi barna. Í þessu sambandi hafa svokallaðir „innkaupalistar“, sem börn fá í grunnskólanum að hausti, verið sérstaklega til umræðu, en kostnaður vegna þeirra getur verið umtalsverður.“

Haustið 2015 sendi Velferðarvaktin stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga erindi í tilefni þess að stjórn sambandsins tók til umræðu „fyrirkomulag fjárútláta foreldra vegna kaupa á námsgögnum barna í grunnskóla og fyrirkomulag skólamáltíða“. Sambandið brást við með því halda vinnufundi með fulltrúum Velferðarvaktarinnar og gera úttekt á kostnaði foreldra m.a. vegna ritfanga. Í framhaldinu sendi sambandið út ábendingu til skólanefnda og skólaskrifstofa um kostnað vegna námsgagna (sjá fylgiskjal) þar sem þeim tilmælum er beint til þeirra að kanna framkvæmd þessara mála í sínu sveitarfélagi.

Auglýsing

Í úttekt sambandsins sem kynnt var fyrir Velferðarvaktinni þann 17. maí síðastliðinn kemur fram að skólar gera mjög mismunandi kröfur um hvaða gögn nemendum ber að koma með í skólann. Er þar um að ræða upphæðir allt frá 400-22.300 krónur. Kostnaður er því mjög mismunandi milli sveitarfélaga og jafnvel milli skóla í sama sveitarfélagi. Velferðarvaktinni er kunnugt um að ákveðin sveitarfélög, t.d. Ísafjarðarbær og Borgarfjörður eystri, útvegi nemendum ritföng þeim að kostnaðarlausu og að Sandgerðisbær tekur einnig upp slíkt fyrirkomulag á skólaárinu sem hefst nú bráðlega.

Bent skal á að samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem lögfestur var hér á landi þann 20. febrúar 2013 og er nú hluti af íslenskri löggjöf, eiga börn rétt á ókeypis grunnmenntun. Þar segir m.a. í 28.gr. „Aðildarríki viðurkenna rétt barns til menntunar og skulu þau, til þess að réttur þessi nái fram að ganga stig af stigi og þannig að allir njóti sömu tækifæra, einkum: a) Koma á skyldu til grunnmenntunar sem allir geti notið ókeypis.” Einnig skal bent á að skv. 31 gr. grunnskólalaga skal skyldunám vera veitt að kostnaðarlausu og er óheimilt að krefja nemendur eða foreldra þeirra um greiðslu fyrir kennslu, þjónustu, námsgögn eða annað efni sem nemendum er gert skylt að nota í námi sínu. Þar er einnig lagatexti sem stuðst hefur verið við varðandi kostnaðarþátttöku foreldra „Þó er opinberum aðilum ekki skylt að leggja nemendum til gögn til persónulegra nota, svo sem ritföng og pappír.“


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283