Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Félag Ólafs Ólafssonar byggir rúmlega 330 íbúðir

$
0
0

Festir ehf., félag í eigu Ólafs Ólafssonar kaupsýslumanns, undirritaði í síðustu viku samning við Reykjavíkurborg um uppbyggingu rúmlega 330 íbúða á Gelgjutanga. Festir varð til við uppskiptingu á fasteignafélag Ólafs, Festingu ehf., en það félag heldur utan um umtalsvert magn fasteigna sem fjárfestirinn á hér á landi.

Auglýsing

Fyrir á félagið lóðir á svæðinu þar sem uppbygging er áætluð. Samkvæmt samningi við Festi ehf. sem skrifað var undir þann 10. mars síðastliðinn mun Festir byggja 332 íbúðir á svæðinu. Í samningnum er Vogabyggð 1 skipt upp í fimm lóðir samkvæmt deiliskipulagstillögu sem er í vinnslu. Samningarnir þrír kveða á um uppbyggingu á svæði 1 á Gelgjutanga en á því svæði verða byggð fimm fjölbýlishús. Reykjavíkurborg mun fá tvær lóðir til ráðstöfunar en Festir ehf. þrjár lóðir til uppbyggingar. Reykjavíkurborg framselur aðra lóðina til Festis ehf. fyrir tæpar 326 milljón krónur. Verðið er grundvallað á mati tveggja löggiltra fasteignasala. Þá er samið um að Festir ehf. taki þátt í listskreytingum í Vogabyggð. Loks kveður samningurinn um nauðsynlegan flutning á skólpdælustöð á Gelgjutanga.

Fjallað var um Festingu ehf. forvera Festi í DV árið 2012. „Fyrir skiptinguna á Festingu ehf. átti félagið meðal annars fasteign­irnar sem hýsa starfsemi Sam­skipa á Íslandi í Kjalarvogi, skrif­stofuhúsnæði kennt við Olís á Suðurlandsbraut 18 og höfuð­stöðvar bifreiðaumboðsins Öskju á Krókhálsi. Askja sér meðal annars um innflutning og sölu á Mercedes Benz bifreiðum. Festing skilaði hagnaði upp á rúmlega milljarð króna árið 2010 og eru eignir félagsins verðmetn­ar á meira en 16 milljarða króna.“ Þá sagði Heimir Sigurðsson, stjórnarformaður Festis, að félagið hefði „farið í gegnum þetta hrun án þess að lenda í neinum vandræðum.“

Auglýsing

Ólafur var, ásamt Hreiðari Má Sigurðssyni, Sigurði Einarssyni og Magnúsi Guðmundssyni, sakfelldur fyrir Hæstarétti þann 12. febrúar 2015 fyrir sinn þátt í Al-Thani-málinu og dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi. Ólafur hóf afplánun dómsins þann 24. febrúar 2015 og sat inni á Kvíabryggju.

Á meðan þeir afplánuðu á Kvíabryggju var lagabreyting um fullnustu refsinga samþykkt á Alþingi.  Stundin fjallaði um lagabreytingu allsherjarnefndar og að hún væri væri sérsniðin fyrir Kaupþingsmenn. DV greindi frá því í apríl 2016 að mennirnir væru komnir á Vernd og svo í september síðastliðnum var greint frá því að þeir væru farnir af Vernd og væru aðeins undir rafrænu eftirlit.

Auglýsing

Vogabyggð austan Sæbrautar verður breytt í íbúða- og atvinnusvæði. Svæðið er í dag eingöngu atvinnusvæði en eftir breytingar verður fjórðungur húsnæðis ætlaður atvinnustarfsemi. Gert er ráð fyrir 1.100 íbúðum í hverfinu eftir breytingar. „Breytingin kallar á endurbyggingu á öllum innviðum hverfisins og á það sér ekki fordæmi í Reykjavík að endurbyggja og breyta svo stóru svæði sem hér um ræðir. Reykjavíkurborg hefur kynnt þessi áform um breytingu á skipulagi og fyrirkomulag á uppbyggingu fyrir lóðarhöfum innan hverfisins,“ segir á vef Reykjavíkurborgar um Vogabyggð. 

Í ársbyrjun 2015 starfshópi hjá borginni falið að vinna að uppbyggingu hverfisins og hefur hann fengið umboð borgarráðs til að semja við lóðarhafa á grundvelli fyrirliggjandi deiliskipulagstillagna. Gert er ráð fyrir auknu byggingarmagni á svæðinu.  Íbúðarhúsnæði verður á flestum lóðum og heildarbyggingarmagn um 155.000 m  fyrir þær 1.100 íbúðir sem áætlað er að byggja. Atvinnuhúsnæði verður á um 56.000 m. „Þessi uppbygging og breytt nýting mun auka verðmæti lóðanna verulega. Vegna mikils kostnaðar við uppbyggingu innviða hverfisins er áformað að semja við lóðarhafa um fyrirkomulag uppbyggingar og þátttöku þeirra. Í samþykkt borgarráðs áskilur Reykjavíkurborg sér rétt til að hefja ekki framkvæmdir við uppbyggingu hverfisins fyrr en lóðarhafar sem ráða yfir 70% af nýju byggingarmagni á viðkomandi svæði hafa skuldbundið sig til þátttöku og að ráðast í uppbyggingu á sínum lóðum.“

Lóðarleigusamningar á svæðinu eru alls 50 og lóðarhafar um 140 talsins. Hjá borginni fengust þær upplýsingar að verkefnið væri stærsta uppbygging nýs hverfis á landrými þar sem þegar er starfsemi.

Aðalmynd er samsett.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283