Óskar Helgi Óskarsson skrifar
Í ljósi nýjustu tíðinda; af „afrekum“ Landsbankaþjófanna (LBI t.d.), gamalla sem nýrri, er orðið ljóst að landsmenn VERÐA að rísa upp og steypa núverandi stjórnvöldum, með góðu — eða þá illu, ef ekki vill betur.
Á dögunum bryddaði ég upp á þeim möguleika, að Íslendingar afhrópuðu Guðna Th. Jóhannesson frá Bessastaða torfunni og settu Hrafn Jökulsson hans í stað, enda hefir Guðni Th. Jóhannesson opinberað fyrir löngu, hvers lags mann hann hefir að geyma, sem ómerkur handlangari núverandi valdaklíku í landinu.
Til viðbótar Hrafni Jökulssyni; vildi ég útnefna Ragnar Þór Ingólfsson, leiðara Verzlunarmannafjelags Reykjavíkur við hlið Hrafns, til þess sð reyna endursiðvæðingu þessa samfélags, sem er að verða úrkynjun fjármagns-öfgaafla, sem og alls lags sinnuleysis, og einka hagsmuna lýðs að bráð.
Eigi ekki að fara eins fyrir Íslendingum eins og Vestur- Rómverjum (í september árið 476) er brýnt mjög að landsmenn bretti upp ermar, hendi til hliðar gælum við Sólarlandaferðir — húsvagnaflakk innanlands, sem og aðra dæguriðju og einhendi sér þess í stað, að hrinda þeirri skrímslasveit til hliðar, sem er að grafa undan hagsmunum okkar allra, áður en við hröpum enn neðar, í gjótur tortímingar lands og miða. sem og fólks og fénaðar.
Lögreglu, Landhelgisgæzlu og Tollheimtumönnum (Tollgæzlu) er skylt að ganga í raðir byltingarsveita, sem koma þarf á laggirnar, hið allra fyrsta, í landinu. Þar mega menn hvergi skorazt undan merkjum hinna sameignilegu hagsmuna.
Einboðið er, sýnist mér, að núverandi embættis- og stjórnmálamönnum nái að koma til útlegðar, í einhverjum þeim löndum nálægum sem og fjarlægum, sem treystu sér til að hýsa þann mannskap, á annað borð. Sé ég þar fyrir mér; ýmis Afríku- og Suður-Ameríkuríkja, t.d.
Viðamesta verkefnið hér heimafyrir; er að skrúfa niður Alþingisómyndina, stjórnarráð, sem og fríviljuga fjárplógsstarfsemi banka- og lífeyrissjóða, en í þeim batteríum mörgum eiga allmargir stjórnendur orðið örðugt um hreyfingar margvíslegar, sem almenn stoðkerfisvandamál, sökum áunninnar og sjálfskipaðrar velmegunar og ofgnóttar, sem kunnugt er.
Undir mögulegri leiðsögn Hrafns Jökulssonar og þeirra Ragnars Þórs Ingólfssonar, gætum við séð fyrir okkur, ekki miklu lakara stjórnarfyrirkomulag en tíðkaðist hjá þeim Gaiusi Maríusi og Súlla þó á ýmsu hafi gengið hjá þeim, á beztu árum Rómverska lýðveldisins: jafnvel.
Vilji menn hafa samband; þá er netfang mitt : oskarhelgi1958@gmail.com og gsm-sími 618 5748, geti ég orðið að einhverju því liði sem verða mætti til brýnnar kollsteypu hins óviðunandi ástands, aldeilis.
Óskar Helgi Helgason, sölumaður séhæfðra verkfæra fyrir málmiðnað, til lands og sjávar.