Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Stuðningur við hryðjuverkahópa og eldfim deila arabaríkja

$
0
0

Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna reynir nú að miðla málum í deilum arabaríkja þar sem nokkur þeirra, undir forystu Sádí-Arabíu hafa beitt Katar viðskiptaþvingunum og stjórnmálasambandsslitum. Undirliggjandi er kraumandi reiði Sáda yfir því að Katar móti sér sjálfstæða stefnu gagnvart Íran og reyni að halda samskiptum opnum við ríkið, einkum og sér í lagi vegna sameiginlegra olíuhagsmuna við miðlínu efnahagslögsögu landanna í Persaflóa.

Það er ekki bara sú afstaða Katar að sýna sjálfstæði með jákvæðum samskiptum við Íran sem er eitur í beinum Sáda; sjónvarpsstöðin Al-Jazeera er þyrnir í augum þeirra enda hefur sjónvarpsstöðin verið krítískt í nálgun og farið sínar eigin leiðir.

Í makalausri og óforskammaðri kröfugerð sem bandalag Sáda settu Katörum gegn afléttingu viðskiptaþvingana, var lokun Al-Jazeera sjónvarpsstöðvarinnar. Katar tekur það ekki í mál og slík krafa fær lítin stuðning utan svæðsins.

Auglýsing

Sádar saka svo Katar um að heimila stórfelldan fjárstuðnig við hryðjuverkahópa sem er í meira lagi hlálegt í ljósi þess að stærsti fjárhagslegi bakhjarl þessara hópa eru einmitt Sádar. Ekki það að Katar sé saklaust af að láta óátalið að fjármunir séu ferlaðir til hryðjuverkahópa í gegnum landið.

Bandaríkjastórn hefur lengi verið fullkunnugt um fjárstreymið sem fer til hryðjuverkahópa frá arabaríkjum, einkum og sér í lagi Sádí-Arabíu. Þetta má meðal annars lesa úr leyniskjali frá utanríkisráðherratíð Hillary Clinton frá árinu 2009 sem birt var af WikiLeaks.

Í skjalinu er ítarleg greining á þessum málum og segir þar fullum fetum:
„Styrktaraðilar í Sádí-Arabíu eru megin uppspretta fjárstuðnings til hryðjuverkahópa Súnna í heiminum.“
Sú greining kemur einnig fram í diplómataskeytinu að Katar sýni lítinn vilja til þess að stemma stigu við hryðjuverkafjármögnun í gegnum eigið land.
Þetta kann að vera að breytast nú eftir heimsókn bandaríska utanríkisráðherrans til Katar þar sem stjórnvöld gáfu fyrirheit um að að gera eitthvað í málunum. Hvort sem það er meira í orði en verki á eftir að koma í ljós en Sádar voru fljótir að afgreiða þessi fyrirheit sem óburðug og ófullnægjandi, þó svo að Tillersson hrósaði Katar fyrir að stíga þetta skref.

mynd: Tillerson og utanríkisráðherra Katar/ Al-Jazeera


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283