Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Er þetta hægt … ?

$
0
0

Óskar Helgi Helgason skrifar

Er þetta hægt … ?  Spurði mig síðdegis (18. Júlí), mætur bifreiðastjóri borgfirzkur, sem annast hefir vandasama sauðfjárflutninga auk annars, um margra ára skeið, víðsvegar um land.

Sagði ég honum lauslega frá fjárkúgunartilburðum Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, mér á hendur, hverjir hófust í desember síðastliðnum, með lokaaðvörun um iðgjaldagreiðzlu, fyrir árið 2009, upp á kr. 135.449.00, sem stökkbreyttust síðan í kr. 179.732.00, þann 13. janúar s.l., undir yfirskyni greiðzluáskorunar frá Lögheimtunni ehfafhentrar af stefnuvotti Sýslumannsins á Suðurlandi, og má því segja að það embætti sé hlutaðeigandi í þjófnaðarferli áðurnefnds Söfnunarsjóðs, þar með, en að morgni 3. febrúar s.l., var „skuld“ mín við sjóðinn skyndilega orðin, að kr. 0 (núll), en þess ber að geta, að ég hafði á tímabilinu 13. janúar – 3. febrúar, sent Ríkissaksóknara og Umboðsmanni alþingis, auk nokkurra annarra, frásögu af tilraunum ofantalinna aðila, til frekari gripdeilda þeirra, úr mínum vösum.

Árin 2004 – 2008; hafði ég látið narrazt til (þá ég hóf sjálfstæða atvinnustarfsemi), að greiða Söfnunarsjóðnum kr. 153.700.00 sökum fagurgala þaðan úr kytrum um, hvers lags happ það yrði mér, að greiða til þessa fjandans pestar- og lygabælis.

Já – það er hægt að neita þessu glæpaliði Lífeyrissjóðanna um að afhenda því, umhugsunarlaust. stigvaxandi hluta launa, sem yfir a.m.k. cirka 90 – 95% launþega greiða, í þessar maðkaveitur fjárplógs- og sóunar, sé gengið upp að hlið lagsmanna (lögmanna) þessarra þjófabæla, af fullkominni einurð, og án nokkurrs hiks.

Tek hér dæmi um ósvífni og yfirgang Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda, skv. „samþykkt“ stjórnar sjóðsins, frá 17. marz 2015, skv. heimasíðu hans:

Ákvörðun um launakjör framkvæmdastjóra
Stjórn hvers félags ræður framkvæmdastjóra og gerir við hann ráðningar- og starfssamning. Stjórn félags ber ábyrgð á að starfssamningur framkvæmdastjóra sé gerður á faglegum grunni og að fyrir honum liggi hlutlæg rök. Við ákvörðun launa framkvæmdastjóra skulu stjórnarmenn sem tilnefndir eru með tilstuðlan sjóðsins líta til innri þátta félags, launadreifingar innan þess og launa sem ætla má að framkvæmdastjóra bjóðist á þeim markaði sem félagið starfar á.

Kaupaukar og hvatakerfi
Sjóðurinn leggur áherslu á að ávallt liggi fyrir greinargóðar upplýsingar og rök fyrir starfskjörum þeirra félaga sem sjóðurinn á verulegan hlut í, m.a. árangurstengdum greiðslum, kaupaukum og starfslokasamningum séu þeir gerðir. Nauðsynlegt er að hluthafar séu upplýstir um forsendur og rök fyrir kaupaukum og breytilegum launaliðum.

 

Svona starfa Lífeyrissjóðirnir, í sínum lokuðu skúmaskotum, á ská og skjön við hagsmuni iðgjaldendanna; algjörlega.

Í Hagabraskarasamsteypunni var staðfest af Kauphallarvefnum, að hlutdeild Söfnunarsjóðsins í Högum næmi 2.29% t.d., þann 13. júlí s.l.

Á Sumarþingi Flokks fólksins, í Háskólabíói á Laugardaginn var, hefðu þeir Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson verið menn að meiri, hefðu þeir tilkynnt ALLSHERJARVERKFALL af hálfu sinna félaga (VR og VLFA), sem ágætan vísi að upplausn núverandi þjóðsfélagsskipunar, þar sem fjárplógsöfl ríkjandi kerfis eru að grafa meir og meir undan venjulegu fólki í landinu, þar sem burgeisar siðspillingar og ránsskapar munu kæfa allt eðlilegt mannlíf, með hinum skelfilegustu afleiðingum, á meðan alþingismenn og Bessastaðaábúandi sleikja sína rjómaísa, í fullkominni firringu alls raunveruleika hins alvarlega ástands.

Rétt að fram komi að Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda hefir ekki getað svarað ítrekuðum fyrirspurnum mínum né Umboðsmanns alþingis til sjóðsins um ástæðu þess, að „skuld“ mín var að engu orðin, á þriðja degi febrúar, s.l.
Lesendur geta svo velt vöngum yfir hvernig Sortabælin vinna, þegar þeim hentar, í skjóli Alþingis, ASÍ- Gylfa og Samtaka atvinnulífsins; óáreitt að mestu, til þessa.

30. maí s.l. sendi ég Ríkissaksóknara formlega ákæru, á hendur forsvarsmanna fimm lífeyrissjóða, sem ruplað höfðu peningum af mér — allt frá fermingarárssumrinu 1972, þá ég var liðléttingur hjá hinu merka fyrirtæki, Hraðfrystistöð Gerðabátanna, suður í Garði — og fram eftir 1. áratug 21. aldarinnar.

Landsmenn!
Þið sem eruð ekki því verr haldin af óæskilegum þræla- og þýlindis eiginleikum, farið að rumska til vitundar um rétt ykkar, til þess að HUNZA ólögmæti Alþingis-paragraffana, um sjálftöku hins skelfilega fólks sem sólundar drjúgum hluta æfitekna ykkar, upp á hvern einasta dag ársins!!!

Óskar Helgi Óskar Helgi Helgason, sölumaður séhæfðra verkfæra fyrir málmiðnað, til lands og sjávar.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283