Frá Amnesty International
Tala látinna flóttamanna á Miðjarðarhafinu hefur aldrei verið meiri en árið 2016. Rúmlega 4.500 karlmenn, konur og börn drukknuðu eða hurfu þegar þau flúðu heimili sín á ósjófærum og ofsetnum bátum. Mun fleiri hafa týnt lífi sínu það sem af er þessu ári.
Þrátt fyrir þessa sláandi staðreynd hafa ríkisstjórnir Evrópu dregið úr eftirliti á sjó og látið frjálsum félagasamtökum eftir að sinna leitar- og björgunaraðgerðum.
Í stað þess að bjarga lífum og tryggja öruggar leiðir fyrir flóttafólk, sem leggur upp í stórhættulega ferð yfir hafið, hóf Evrópusambandið samstarf við líbísku strandgæsluna sem stöðvar för flótta- og farandfólks og heldur með það aftur til Líbíu. Þar er flótta- og farandfólkið sett í varðhald og látið sæta hryllilegri meðferð, þar á meðal pyndingum og nauðgunum.
Við veljum að bjarga lífum. Smelltu hérna og skrifaðu undir ákallið okkar til íslenskra stjórnvalda og krefðu þau um að leggja sitt af mörkum til björgunar á flótta- og farandfólki á Miðjarðarhafinu.
Björgunaraðgerðir á flótta- og farandfólki á Miðjarðarhafinu, sem miða að endursendingum til Líbíu, þar sem helvíti á jörðu mætir þeim, er engin björgun.
Þetta verður tafarlaust að stöðva. Við höfum siðferðislega og lagalega skyldu til að bjarga lífum á hafi úti. Við höfum sömu skyldum að gegna gagnvart því að bjóða flótta- og farandfólki vernd og aðstoð.