Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Af Vitleysuvaktinni

$
0
0

screen-shot-2017-07-02-at-10-21-05-261x300Björn Geir Leifsson skurðlæknir birti þessa færslu á Facebook í gærkvöld. Hún er birt hér með góðfúslegu leyfi höfundar.

 
 
 
 

Af Vitleysuvaktinni

Skyldu sykurpillurnar hafa hjálpað…?

Vaktsveitin var í rannsóknarferð þegar íslensku valkyrjurnar vermdu þeim frönsku undir iljum svo liðið horfði ekki á leikinn. Það var auðvitað grábölvað að elskurnar okkar skyldu ekki merja þetta.


En meirihluti þjóðarinnar sat límd við litaskjáina og sum þeirra athugulli en önnur. Góðvinur Vaktstjórans tók eftir því að frönsku fraukurnar voru að taka inn einhvers konar skammta eins og sést á meðfylgjandi myndum.


Vaktin hafði samband við útibú Vitleysuvaktarinnar í París og fékk staðfest að um er að ræða hómeópatiskar sykurpillur.

 

20155675_10212608369238229_1224136284405719688_n

 

20246031_10212608369198228_994848716775643141_n

Íþróttafólk kaupir hvað sem er, bara ef loforð fylgir um aukinn árangur eða minni verki. Hómeópatíuremedíur innihalda ekki neitt nema sykurinn sem pillurnar eru búnar til úr. Margir halda að þetta séu grasameðul en hómeópatar þynna upprunaefnið svo margfalt að það er efnafræðilega útilokað að eitthvað sé eftir. Alls konar rugl er til um að eftir verði einhver óskilgreind orka eða tíðni en það þyrfti að endurskrifa allar fræðibækur í efna- og eðlisfræði ef þessi vitleysa á að virka.

Ef þú spyrð hómeópata þá vitna þeir í margs konar rannsóknir en þegar það er skoðað er það tóm vitleysa. Þar sem þetta er svo útbreitt hafa opinberar rannsóknanefndir í mörgum löndum farið gegnum öll gögn og allar komist að sömu niðurstöðu: Hómeópatía virkar ekki gegn neinum sjúkdómum eða kvillum.

Uppruni vitleysunnar er líka auðrakinn misskilningur eins manns fyrir tvö hundruð árum rúmum.

Margir telja þetta hætulaust og það má svo sem álíta svona not eins og þarna er um að ræða, vera saklausan kjánaskap, en þegar hómeópatar og náttúrulæknar nota þetta við alvarlegum sjúkdómum í stað þess að vísa til alvöru heilbrigðisþjónustu þá getur farið illa, því miður eru mörg dæmi um slíkt.

Algengt er að vísa til þess að „milljónir“ noti þetta en það segir ekkert um hvort það virki í raun. Enn fleiri milljónir nota þetta ekki og verður ekki meint af 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283