Flest heimili eru að drukkna í umbúðum, sem með smá hugmyndaflugi mætti auðveldlega endurnýta. Þeir allra metnaðarfyllstu ganga alla leið og byggja gróðurhús úr plastflöskum en við erum nú ekki öll með garð og græna fingur svo líklega munu ekki mjög margir nýta þá hugmynd.
Fyrir þá sem hafa gaman af föndri eru möguleikarnir óendanlegir en nú skulum við bara horfast í augu við það að við erum ekki öll að fara að eyða síðkvöldum í að lakka klósettrúllur og búa til mósaíkmyndir úr flöskutöppum.
Þeir sem ekki eru mikið fyrir föndur sem útheimtir tíma og nostur geta samt sem áður endurnýtt miklu fleira en flest okkar gera. Hér eru nokkrar hugmyndir fyrir þá sem ekki eru líklegir til að skapa listaverk úr dósum, eggjabökkum og plastpokum.
Notaðu hólka úr klósettpappírsrúllum undir snúrur, þá flækjast þær ekki saman. Sömu hugmynd má nota fyrir garn. Settu rúllurnar í kassa og lokaðu í skáp eða skúffu. Eða – ef þú ert föndari, málaðu þær eða notaðu veggfóðursbúta til þess að búa til fallega hirslu.
Með því að stinga nokkur göt á plastflösku og festa hana við garðslöngu er hægt að búa til garðúðara.
Eins má skera þær í sundur og nota sem jurtapotta utan dyra. Þeir listrænu skreyta þær auðvitað og nota innandyra. Það er sniðugt að nota stútinn fyrir plöntur sem þurfa mikla vökvun því þá er auðvelt að hleypa vatninu út ef maður vökvar þær of mikið og eins er þá auðvelt að kanna hvort nægur raki er í moldinni.
Neðri hlutinn verður stjaki undir tekerti, bara fylla flöskuna með smásteinum, glerperlum, einangrunarplaskúlum eða öðru fallegu, um að gera að nota umbúðir eða annað sem yrði hent sem fyllingu.
Þægilegt er að endurnýta umbúðir á borð við sósubrúsa til þess að geyma pönnukökusoppu. Það tekur minna pláss í kælinum og svo er auðvelt að hella henni í stað þess að nota ausu.
Tómur bjórkassi hentar vel undir flöskur og háa bauka. Tilvalið í útleguna, bæði hentugt og kemur í veg fyrir að sinnepsbrúsinn fari á hliðina og opnist við minnsta hnjask.
Tissjúkassa má t.d. nota undir plastpoka.
Eggjabakka úr frauðplasti eða hörðu plasti má nota undir skrúfur og verkfæri eða saumadót.
Eggjabakkar henta líka vel til að geyma og flytja litlar bollakökur og heimagert konfekt. Eins er sniðugt að nota þá undir tómata, plómur eða aðra viðkvæma ávexti sem gætu farið í klessu í poka í skottinu á leiðinni í bústaðinn.
Geisladiskahylki má nota sem nestisbox. henta vel fyrir beyglu eða kleinuhring. Það má líka nota þau fyrir snúrur sem eru of langar til þess að klósettrúlla henti.