Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

5 grennandi og heilsubætandi drykkir

$
0
0

Ef þú ætlar að breyta um lífsstíl og jafnvel missa nokkur kíló eftir páskafríið þá veistu að rétta leiðin er auðvitað að borða hollt fæði ásamt því að hreyfa þig reglulega. Allt snýst þetta um að eyða fleiri hitaeiningum en þú neytir. Einfalt, ekki satt?! En það eru nokkrir drykkir sem hjálpa þér að hraða á efnaskiptum og auka þannig þyngdartap og hér að neðan getur þú lesið þér til um þá.

1. Detox djúsar
Detox djúsar eru góðir bandamenn í baráttunni við aukakílóin. Þú getur auðveldlega útbúið þá heima í eldhúsi, annaðhvort úr ávöxtum eða grænmeti eða sittlítið af hvoru. Sítrus ávextir eru þekktir fyrir að hafa kröftug hreinsunar áhrif á líkamann svo ef þú ætlar að losa þig við öll eiturefnin sem þarf að skola út svo þú eigir möguleika á að grennast þá skaltu vera viss um að setja sítrus ávexti í djúsinn þinn. Einnig er nauðsynlegt að seta í djúsinn trefjaríkt grænmeti og ávexti eins og engiferrót, gulrætur eða epli þar sem það bætir meltinguna og fyllir þig af andoxunarefnum.
Þessir djúsar hafa tvöfalda virkni þar sem þeir hjálpa líkamanum að losa sig við eiturefni og annað rusl sem sest í smáþörmum og ristli og hjálpa þér einnig að léttast hraðar og á náttúrulegan hátt.

green-detox

2. Grænmetis djúsar
Grænmetisdjúsar get hjálpað þér að léttast, hvort sem þú djúsar úr þeim eingöngu eða í bland við ávexti. Grænmeti eins og kál, brokkólí, blómkál og hvítkál eru frábærir liðsmenn í báráttunni við kílóin. Grænmetið er einnig öflugt til að koma jafnvægi á hormónastarfsemina í líkamanum. Grænmeti er ríkt af næringarefnum sem eru frábær til að minnka líkamsfitu, draga úr bólgum í líkamanum og stýra blóðsykrinum, hraða á efnaskiptunum og hafa alhliða hreinsunaráhrif.

3. Grænt te
Grænt te hefur verið notað í svo öldum skiptir af mörgum heilsubætandi ástæðum og þyngdartap er aðeins ein þeirra. Þó svo að grænt te geti eitt og sér aðeins gert þér kleift að léttast ofurlítið þá hefur það frábær langtíma áhrif. Það að drekka einn bolla á dag af grænu tei, eykur efnaskiptin hjá þér og hjálpar þér  að brenna fitu. Einnig gefur það þér góðan skammt af andoxunarefnum. Veldu gæða grænt te til að tryggja árangurinn. Grænt te gefur þér einnig orku og dregur úr matarlyst. Ef þú drekkur grænt te borðarðu minna af mat á hverjum degi. Grænt te er mjög vinsælt meðal Japana og það er einnig talið draga úr streitu.

power-detox-juice-mix

4. Ávaxtadjúsar – Trönuber og perur
Ávaxtadjúsar eru mjög bragðgóðir og auðvelt að útbúa þá. Þeir eru mjög ríkir af næringaefnum, vítamínum og steinefnum. Það er endalaust úrval af ávöxtum. Pera og trönuber eru frábærir kostir því þau eru rík af c-vítamíni og mjög bragðgóð. Ávaxtadjúsarnir gefa þér orku, hraða á efnaskiptum og veita þér vítamín og prótein sem þú þarft. Trönuberjadjús er einnig gagnlegur til að fyrirbyggja ýmsar sýkingar, sérstaklega e-coli sýkingar, og þvagfærasýkingar. Perur eru ríkar af magnesíum, kalíum og fosfór og gefa þér góðan skammt af c-vítamíni og kalsíum.

5. Svart kaffi
Ef neytt í hófi þá getur svart kaffi haft góð áhrif á heilsu þína. Það er ríkt af andoxuarefnum og talið minnka líkur á ákveðnum tegundum krabbameins og það getur einnig minnkað líkur á hjartasjúkdómum og sykursýki. Koffín er einnig frábært í að hraða á efnaskiptunum og auka brennslu. Passaðu þig á að ef þú ætlar að nota kaffi til að mléttast þá máttu alls ekki setja mjólk eða sykur í kaffið.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283