Nú þegar rúmar þrjár vikur eru til kosninga eiga flokkar enn eftir að skila framboðslistum, uppfæra stefnuskrána frá því í fyrra, og, sumir hverjir, að halda landsfund til að bragur verði að því öllu saman. Þannig gæti enn orðið breyting á baráttunni fram að kjördag, en enn sem komið er þykja mörgum kosningarnar snúast um heldur fátt.
Á meðan fátt er sagt, sést þó sitthvað. Hin myndræna hlið stjórnmálanna verður því fyrirferðarmeiri sem orðunum fækkar. Á þriðjudag varð Miðflokkur Sigmundar Davíðs hugsanlega fyrstur íslenskra stjórnmálaflokka til að kynna einkennismerki sitt á undan nokkru málefni. Hvíti hesturinn – eða bleiki einhyrningurinn, eftir því hver er til svars – virðist hafa slegið í gegn, og nýtur samkvæmt nýjustu skoðanakönnun yfir tíu prósenta fylgis.
Á sama tíma og Miðflokksmenn teiknuðu hest hefur Svanhildur Hólm, aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, birt myndir frá daglegum störfum hins ennstarfandi forsætisráðherra á Instagram, undir myllumerkinu #bjarnidagsins. Þar má sjá barnavininn Bjarna, hinn alþýðlega Bjarna, hinn stórhenta Bjarna, brosmildan Bjarna, Bjarna með kú, Bjarna með listamanni, og auðvitað kökuskreytingameistarann Bjarna, ráðherrann sem fremur list sína í marsipan.
Sama dag og Miðflokkurinn kynnti hið nýja merki skreytti #bjarnidagsins nýja köku, eins og sjá mátti á samfélagsmiðlinum: úr varð hvítur einhyrningur með norðurljósalitað fax.
Hvað þýðir þessi merkjasending? Er formaður Sjálfstæðisflokksins að senda formanni Miðflokksins sneið, eins og sagt er? Eða renna til hans hýru auga? Einhyrningur Bjarna lygnir aftur augum — er hann þá blindur eins og ástin eða eins og réttlætið? Stundum þegja myndir meira en þúsund orð. Ef til vill er sú öld runnin upp í íslenskum stjórnmálum að stjórnmálamenn nýti samfélagsmiðla til að tjá í myndum það sem löng hefð er fyrir, í íslenskum stjórnmálum, að sagt sé með uppnefnum. Kvennablaðið mun hafa augun á þessum myndrænu merkjasendingum fram að kosningum, eða í það minnsta þar til frambjóðendur takast á um sitt fyrsta stefnumál.
Ljósmyndir: Forsætisráðuneytið á Instagram.