Benjamín Julian skrifar.
Þegar Ghasem Mohamadi byrjaði í hungur- og þorstaverkfalli vissi nánast enginn hver hann var. Hann á enga fjölskyldu, flestir vinir hans hafa verið sendir úr landi og það var fyrir tóma rælni að fréttamenn komust að mótmælasveltinu. Viku, og ótal fréttum síðar hafa mörghundruð manns undirritað áskorun til innanríkisráðherra að veita máli hans efnislega meðferð. Í hádeginu í dag tók innanríkisráðherra, Hanna Birna Kristjánsdóttir á móti hópi fólks sem safnaðist saman við innanríkisáðuneytið og krafðist þess sama.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Um hvað snýst málið?
Eftir tveggja ára vist á Íslandi, þar sem hann hefur ekkert fengið að vinna, er geðrænt ástand Ghasems viðkvæmt. Fresturinn sem innanríkisráðuneytið gaf sér til að vinna úr máli hans er að líða. Engin viðtöl hafa verið tekin við hann og útlendingastofnun virðist ekki hafa aflað neinna gagna um málið. Ghasem taldi sig allt eins geta dáið hér eins og að vera sendur til Afganistan, svo hann hætti að borða og drekka.
Á miðvikudaginn hitti ég hann ásamt tveimur vinum og talaði stutt við hann. Þá var hann mjög slappur og vondapur, og honum hefur ekki batnað síðan.
Þegar við fórum í innanríkisráðuneytið í morgun tók Hanna Birna á móti okkur í anddyrinu ásamt aðstoðarmanni sínum, Þóreyju. Eftir að henni höfðu verið afhent 45 bréf sem gestir höfðu undirritað á staðnum sagði hún að fundað yrði um málið í dag. Hún gat að vísu engu lofað og ekkert tjáð sig um málið og þvertók fyrir að hún eða starfsmenn ráðuneytisins myndu tilkynna Ghasem nokkuð. Félagsþjónustan og Rauði krossinn fengju að sjá um það hér eftir sem hingað til.
Ekkert einsdæmi
Mál Ghasems er ekki einsdæmi. Margir lenda í sömu aðstæðum en fara ekki í hungurverkfall. Viku eftir viku eru menn sendir til Palestínu, Afganistan, Írak og Nígeríu einsog ekkert væri sjálfsagðara. “Þeir sóttu um hæli í öðru Evrópulandi,” er viðkvæðið, “og þessvegna þurfum við ekki að pæla í þessu.” Úrskurðirnir sem birtast hælisleitendum eru uppfullir af þessari tímasparandi og samviskuhreinsandi afsökun.
Verði hælisumsókn Ghasems tekin til efnislegrar meðferðar eru góðar líkur að hann fái að vera. Þetta er tilfellið með fjöldamargar aðrar umsóknir. Íslenska ríkinu er í sjálfsvald sett hvort það sendi hælisleitendur unnvörpum í burtu eða taki fyrst við þá viðtal. Þetta er ekki flókið, þó stundum sé reynt að láta það líta þannig út. Það kostar auðvitað peninga að meta málin efnislega, en séu þeir peningar ekki til er ótrúleg afstaða að neita hælisleitendum að njóta vafans. Þeir hafa svo miklu að tapa.
Ástand Ghasems
Ég sit inni í stofu Ghasems og verð að halda áfram verki síðustu daga – að reyna að fá hann til að drekka vatn. Þrátt fyrir vísbendingar héðan og þaðan um að málið hans sé þegar í meðferð hjá innanríkisráðuneytinu hefur enginn þaðan fengist til að koma hingað að segja honum það eða lofa honum neinu. Á meðan morkna innyflin hans, andardrátturinn grynnkar og hann sefur endalaust. Best að sækja glas og reyna aftur.
Image may be NSFW.
Clik here to view.
Benjamín Julian er stuðningsfulltrúi í hlutastarfi. Hann hefur skrifað meira um málið hér.