Quantcast
Channel: Kvennablaðið
Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283

Youngblood-vörurnar eru bylting í förðunarvörum

$
0
0

Youngblood-förðunarlínan er þróuð af Pauline Youngblood. Pauline starfaði um árabil sem klínískur snyrtifræðingur á fegrunar- og lýtalæknastofu í Beverly Hills í Bandaríkjunum. Þar var hún í daglegu sambandi við fólk sem þjáðist af hinum ýmsu húðsjúkdómum eins og bólum, rósroða og öðrum vandamálum. Pauline sá þörfina fyrir að geta borið á farða án þess að erta viðkvæma húðina, húðin gæti andað, gefið henni létta og fallega áferð sem þó næði að hylja vel.
Pauline-Youngblood-Cosmetics-FounderFyrir tilviljun komst Pauline í samband við aðila sem höfðu möguleika á að þróa farða unnan úr steinefnum sem náði að hylja roða og litabreytingar í húðinni. Þar með hófst framleiðsla Youngblood sem kom á markað árið 1996.

Farðinn hentar fyrir allar húðtegundir og þá sérstaklega vel fyrir viðkvæma húð, sem og feita og bólótta húð. Farðinn nær að hylja vel og því þarf aðeins lítið magn af farðanum til að hylja t.d. roða og misfellur í húðinni. Fisléttar púðuragnir samlagast húðinni vel og mynda létta og fallega áferð sem helst falleg allan daginn.


Youngblood:

Fyrir allar húðtegundir
100% hrein og náttúruleg innihaldsefni
Án ilm- og rotvarnarefna
Inniheldur ekki olíur
Án lanolin og talkum

youngblood

Youngblood förðunarlínan er unnin úr náttúrulegum steinefnum. Farðinn er 100% náttúrulegur, olíulaus og án allra kemískra efna. Einstök formúla sem inniheldur hvorki ilm- né rotvarnarefni.

Youngblood förðunarlínan hefur verið fáanleg hér á Íslandi um nokkurt skeið en fyrirtækið er einn af frumkvöðlum í framleiðslu á steinefnafarða.
Margar konur spyrja okkur, “Youngblood er þetta ekki bara fyrir ungar stelpur?“ Alls ekki, þvert á móti eru förðunarvörurnar fyrir allan aldur og allar húðtegundir.

natalie

Vörulínan býður auk steinaefnafarðans upp á breiða litalínu bæði fyrir andlit, augu og varir. Farðinn fæst í föstu og fljótandi formi ásamt lituðum dagkremum sem hylja létt en gefa einstaklega fallegan ljóma.

Vörurnar fást í Hagkaup Kringlunni og Smáralind, Carita snyrtistofu, Snyrtistofunni Krismu, Spönginni, Snyrtistofunni Arona á Akureyri og á vefnum heimkaup.is. Frekari upplýsingar er hægt að finna á Ilma.is og á facebook síðu Youngblood

Kostuð kynning


Viewing all articles
Browse latest Browse all 8283