„Ég get þetta ekki!“
„Þetta er of erfitt fyrir mig!“
„Ég er ekki nógu góð í þessu!“
Þekkjum við ekki öll þessar neikvæðu setningar?
Með því að tala svona til okkar þá erum við búin að ákveða veikleika okkar án þess að láta reyna á þá!
Ég hélt að ég ætlaði aldrei að geta hoppað jafnfætis upp á 30 cm kassa, já það er ekki hátt en fyrir manneskju sem hefur ekki trú á sér er það eins og að hoppa upp á húsþak!
Það tók mig margar tilraunir eða í raun ekki tilraunir, þar sem ég stóð fyrir framan kassann og hreyfðist ekki úr spori. „Ég á eftir að slasa mig“, „Þetta er allt of hátt!“, „Ég er of þung á mér.“ Neikvæðnin kom mér ekkert áfram. Auðvitað ekki!
Neikvæðnin dregur úr manni kjark og og minnkar sjálfstraustið. Neikvæðar hugsanir hafa mikil áhrif á okkar daglega líf og ég tala nú ekki um þegar að við erum að reyna að stíga út fyrir þægindarammann.
Ég ákvað einn daginn þegar ég mætti á æfingu að láta ekki þenna pínulitla kassa stoppa mig! Hætta að hræðast eitthvað sem ég hafði aldrei prufað. Ég byrjaði á að styðja mig við vegginn og hoppa. Vá, það tókst, sigur! Síðan hélt ég mér í báðar hendurnar á þjálfaranum mínum og viti menn það tókst líka, annar sigur! Að lokum hélt ég ekki í neitt, ákvað með sjálfri mér að ég gæti hoppað og hugsaði „Koma svo Harpa! Þú getur allt!“ og bara lét vaða og auðvitað gat ég það! Var meira að segja léttara en ég hafði nokkurn tímann ímyndað mér. Ásamt því að sigrast á þessum ótta mínum við kassann þá sigraðist ég á efasemdunum um sjálfa mig!
Hindranirnar munu að sjálfsögðu halda áfram að poppa upp. Það er kannski okkar vani og í raun ekki óeðlilegt að byrja á því að takast á við erfiðleika og brekkurnar með því að vera neikvæð, draga úr okkur og efast. En með því að stoppa við, stappa í sig stálinu og ákveða að láta ekkert stoppa sig þá munum við rúlla þessu upp!
Það að vera jákvæður og reyna að sjá jákvætt í flestu gerir allt svo miklu auðveldara og skemmtilegra!
Breytum hugsunum og hættum að draga okkur niður með neikvæðni.
Við erum nóg, við getum margt og við erum yndisleg eins og við erum!
Ráð mitt til þín
Gerðu eitthvað eitt í þessari viku sem þér finnst vera þín hindrun!
Stígðu út fyrir þinn þægindahring.
Klífðu fjall, farðu í HotYoga, talaðu fyrir framan sal fullan af fólki, prufaðu að sippa, farðu á skauta… sigrastu á þínum hindrunum með jákvæðni!