Á Íslandi nú til dags, má víða finna epla-, peru-, plómu- og kirsuberjatré í görðum sem dafna ágætlega og gefa ávöxt. Ávaxtatrjám þarf að velja góðan stað í garðinum, í skjóli og þar sem sólar nýtur, til dæmis við suðurvegg.
Ræktuð ávaxtatré eru nánast undantekningalaust ágrædd. Það þýðir að ofanjarðarhlutinn, sem er framræktað yrki, er grætt á rót af villitré sem er með sterkari rætur en yrkið. Ágræðslan er yfirleitt gerð í 20 cm. hæð frá rótarhálsinum.
Við gróðursetningu er æskilegt að blanda hæfilegu magni af lífrænum áburði í jarðveginn. Einnig þarf framræsla að vera góð og gott að jarðvegurinn sé eilítið sendinn. Gerið svolítinn kúf á jarðveginn og plantið trénu þannig að það standi aðeinsofar en jarðvegurinn í kring.
Nauðsynlegt er að setja staur niður með trénu til að styðja við það fyrstu árin. Eftir að ávaxtatré hafa komið sér fyrir eru þau nægjusöm og nóg að kasta nokkrum kornum af áburði í jarðveginn í kringum þau tvisvar til þrisvar yfir
sumarið. Gott er að vökva þau reglulega í þurrkatíð, sérstaklega meðan aldinin eru að vaxa. Ávaxtatré þola vel klippingu en óþarfi er að klippa þau mikið, nema hugmyndin sé að móta þau sérstaklega.
Hæfilegt bil á milli trjáa er 3 – 5 metrar.
Ávaxtatré geta verið sjálffrjóvgandi eða ekki og sum eru það sem kallað er hálfsjálffrjóvgandi. Ef um er að ræða tré sem ekki frjóvga sig sjálf verður að hafa að minnsta kosti tvö tré af öðrum yrkjum til að frjóvgun geti átt sér stað.
Blómgist ávaxtatré mikið getur reynst nauðsynlegt að fjarlægja nokkra aldinvísa úr hverjum klasa til að aldinin verði færri en stærri.
Garðyrkjufræðingar Garðheima eru alltaf til taks til að svara spurningum ykkar varðandi ávaxtatrjárækt og frá 1. mai 2014 verða sérstaklega hagstæð tilboð á ávaxtatrjám og berjarunnum sem og frábær fræðsla í boði alla helgina.